orð ráðherra um frumvarp um hagsmunafulltrúa eldra fólks.
Virðulegi forseti. Það er alvarlegt mál þegar við sem hér störfum, 63 á einum vinnustað hér í þessum þingsal, sammælumst um eitthvað, við semjum um að það verði ekki málþóf eða málalengingar eða leiðindi eins og oft vill verða og samþykkjum mál sem einhver tiltekinn flokkur hefur barist fyrir kannski um langa hríð og er kjarni baráttu umrædds flokks, þá er það mikil vanvirðing við þann flokk og alla þá sem reiða sig á þann flokk sem málsvara sinn að gera ekki úr því sem samþykkt hefur verið á Alþingi klára og skýra stefnu eða framfylgingu á því sem samþykkt hefur verið. Ég held að hæstv. forsætisráðherra sem hér er í salnum, einn ráðherra í dag, hafi beitt sér fyrir því (Forseti hringir.) á sínum tíma að bæta starfsandann hér og fyrirkomulagið og svona framganga (Forseti hringir.) er ekki til að bæta hlutina. Við skulum vanda okkur í því hvernig við komum fram við hvert annað og hvernig við sýnum virðingu því sem sammælst hefur verið um. (Forseti hringir.) Þetta er afrakstur heils kjörtímabils sem hafður er að engu.