Almannavarnir og áfallaþol Íslands.
Virðulegi forseti. Við erum fámenn þjóð á eyju úti í miðju hafi sem er í sífelldri mótun af móður náttúru. Við lifum á tímum loftslagsbreytinga þar sem öfgar í veðurfari munu halda áfram að aukast. Hingað til lands fáum við sex sinnum fleiri ferðamenn en fólkið sem hér býr á hverju ári. Eldstöðvakerfin í nágrenni höfuðborgarinnar og okkar stærsta alþjóðaflugvallar eru vöknuð úr 800 ára dvala. Allt þetta eykur á kröfur til almannavarna og því er augljóst að við sem þjóð þurfum að vera betur undirbúin undir þau áföll sem munu mögulega dynja yfir okkur á næstu dögum, vikum, mánuðum og árum.
Einn mikilvægur þáttur í þessum undirbúningi er að við sem hér sitjum tökum heiðarlegt og opið samtal um það hvernig við getum bætt áfallaþol landsins og hvaða kerfisbreytingar og fjárfestingar við þurfum að fara í til að tryggja það að við getum staðist komandi áföll. Undanfarna áratugi höfum við verið nokkuð heppin þegar kemur að náttúruhamförum á Íslandi. Flest eldgos hafa verið lítil eða haft tímabundin áhrif á íbúa og innviði. Sum hafa meira að segja leitt af sér flóðbylgju ferðamanna sem segja má að hafi bjargað efnahag landsins eftir hrun. En nú hefur móðir náttúra svo sannarlega minnt okkur á það að hennar orka og afl er ekki bara fallegt aðdráttarafl fyrir ferðamenn heldur einnig eyðingarmáttur af mun stærri stærðargráðu. Þær hamfarir sem nú dynja yfir eru heldur ekki bara stutt nokkurra daga ferðamannagos heldur síendurteknir atburðir sem erfitt er að sjá fyrir endann á. Þetta krefst þess að við endurhugsum viðbragðskerfi okkar sem hingað til hefur einungis þurft að bregðast við styttri atburðum. Núverandi álag á almannavarnir og varalið þess er mörgum stærðargráðum meira nú en undanfarna áratugi. Fámenn almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sem þó fékk góðan stuðning til að vaxa í gegnum Covid-faraldurinn, er allt of fámenn til að takast á við bæði núverandi og komandi verkefni. Öll vinnan við gerð viðbragðsáætlana og annarra forvarnaverkefna hefur þurft að sitja á hakanum til að bregðast við þeirri miklu vá sem steðjar að íbúum á Reykjanesi. Á sama tíma er varalið almannavarna að meginhluta samsett úr sjálfboðaliðum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg og Rauða krossinum á Íslandi. Álagið á þessa sjálfboðaliða undanfarna mánuði og ár hefur aldrei verið jafn mikið. Gengið hefur verið ansi nærri þeim velvilja sem þessir sjálfboðaliðar fá hjá sínum vinnuveitendum og staðan er einfaldlega orðin þannig að erfitt er að manna viðbragð með sjálfboðaliðum. Þetta álag á aðeins eftir að aukast á næstu árum og því er mikilvægt að ríkisstjórnin fari í aðgerðir til að takast á við breytta sviðsmynd og auknar kröfur.
Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra hverjar áætlanir ríkisstjórnarinnar séu þegar kemur að eflingu almannavarna og þess viðbragðskerfis sem í dag er byggt upp af sjálfboðaliðum. Stendur til að auka við starfsmannafjölda og fjármögnun til almannavarna? Á sama tíma er mikilvægt að horfa til þess að þau svið sem falla undir almannavarnir hafa stórlega aukist frá því að þau voru færð yfir til ríkislögreglustjóra og dómsmálaráðherra árið 2003. Viðbragðsaðilar og aðrir með mikla þekkingu á þessu sviði spyrja hvort ekki væri rökréttara að gera almannavarnir aftur að sjálfstæðri stofnun sem heyri beint undir forsætisráðuneytið, rétt eins og á öðrum Norðurlöndum. Því spyr ég: Hver er afstaða hæstv. forsætisráðherra til þessara tillagna?
Við erum að ganga inn í tímabil tíðari eldgosa, meiri áhrifa loftslagsbreytinga og mikillar aukningar á sviði fjölþáttaógna. Þessar auknu hættur krefjast þess að lögð sé mun meiri áhersla á gerð viðbragðsáætlana þvert á ráðuneyti til að efla áfallaþol landsins og til að tryggja að ekki verði kerfisbrestur í mikilvægum innviðum landsins eins og bent hefur verið á í skýrslum þjóðaröryggisráðs. Þessar áætlanir þurfa einnig að taka tillit til þess að sökum smæðar okkar getum við ekki tekist á við allar þessar ógnir ein heldur þurfum við að efla til muna samstarf við Norðurlönd og Evrópusambandið. Því spyr ég: Hefur hæstv. ráðherra nálgast ráðamenn annarra landa og rætt aukið samstarf eða erum við sem þjóð of stolt til að biðja um aðstoð þegar á reynir?