Almannavarnir og áfallaþol Íslands.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu sem ég tel mjög mikilvæga. Ég vil byrja á að segja það að Landsbjörg og sjálfboðaliðastörf hjálparsamtaka eru ein mikilvægustu og virðingarverðustu störf í landinu þegar kemur að öryggi landsmanna. Öryggi landsmanna er ein af helstu skyldum ríkisvaldsins. Við erum hér með ótrúlega öflugt sjálfboðastarf sem er gríðarlega mikilvægt að við höldum utan um og okkur ber skylda til þess að halda utan um þessa merkilegu stofnun sem er Landsbjörg og það sjálfboðaliðastarf sem þar fer fram og í öllum hjálparsamtökum. Það er okkar verkefni og ég treysti á að ríkisvaldið sé í góðu samstarfi og skili sínu þegar kemur að samningum og öðru hvað varðar þessi mikilvæg samtök.
Þegar kemur að áherslumálum og spurningu málshefjanda þá er mikilvægt, eins og kemur fram í þeim punktum sem hér liggja fyrir, að það er ekki hægt að keyra endalaust á velvilja sjálfboðaliða og vinnuveitenda þeirra þegar um löng útköll er að ræða og þau störf sem þarf að vinna á hættustundu. Það er mjög mikilvægt að sjá til þess að hlúa að því að sjálfboðaliðum verði einfaldlega ekki ofgert. Það er hlutverk ríkisvaldsins að gera það í samvinnu við Landsbjörg. Á þessum tímum hamfara í Grindavík, jarðskjálfta og eldgosa sem þar eru, þá er sérstaklega mikilvægt að skoða þessi mál.
Varðandi önnur atriði sem koma fram í áherslupunktum málshefjanda sem lúta t.d. að því hvort eigi að hafa sjálfstæða stofnun undir forsætisráðuneytinu þá er ég ekki svo viss um að við ættum að gera það. Almannavarnir eru í dag deild hjá ríkislögreglustjóra. Ég er gamall starfsmaður efnahagsbrotadeildar sem var hjá ríkislögreglustjóra og það var eiginlega sjálfstæð stofnun þar og vert að minna á að lögreglan er einn af helstu viðbragðsaðilum landsins af hálfu ríkisins, lögreglan og slökkviliðið. Það er mikilvægt að það samstarf við hjálparsveitir sé fyrir hendi. (Forseti hringir.) En þetta þarf að sjálfsögðu allt að skoða rækilega og það þarf að gera þetta í samvinnu við sjálfboðaliðastörfin og við viðbragðsaðila ríkisins.