Almannavarnir og áfallaþol Íslands.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir að kalla eftir þessari mikilvægu umræðu. Verkefnin sem stjórnvöld og almannavarnir þurfa að takast á við verða stöðugt fleiri og meira krefjandi. Það er okkur öllum ljóst að við erum gengin inn í tímabil þar sem óveður vegna loftslagsbreytinga, heimsfaraldrar, jarðhræringar og eldsumbrot verða æ algengari. Það liggur einnig fyrir að þetta er ekki tímabundið ástand heldur nýr raunveruleiki sem þarf að bregðast við. Stjórnvöld þurfa að hefja vinnu, og hefðu auðvitað átt að vera löngu búin að hefja þá vinnu ef út í það er farið, við að teikna upp allar þær sviðsmyndir sem mögulegar eru til að efla viðbragðsgetu sína og þá ekki einungis neyðarviðbragðsgetu við þeim hamförum sem eiga sér stað á hverjum tíma. Neyðarviðbrögð þarf til að tryggja öryggi lífs og vernd innviða en það er ekki síður nauðsynlegt að draga upp mynd af því hvernig við tökum betur og hraðar utan um fólkið sem verður fyrir þessum hamförum.
Nú eru tæpir þrír mánuðir frá því að Grindvíkingar þurftu að flýja heimili sín í skyndi. Síðan hefur ýmsum aðgerðum verið ýtt úr vör en enn standa Grindvíkingar frammi fyrir bæði efnahagslegri óvissu og algjörri óvissu um framtíð samfélags síns. Við þurfum að horfa á stöðu fólks heildrænt, ekki bara á einstaka veraldlega þætti þeirrar krísu sem þau standa frammi fyrir. Við þurfum að hlusta á það sem þau eru að kalla eftir og bregðast við í samræmi. Viðbragðsaðgerðir eiga nefnilega ekki að snúa einungis að innviðum, atvinnurekstri og veraldlegum hlutum. Við þurfum sviðsmyndir sem snúa að fólkinu sjálfu og sem gæta sérstaklega að viðkvæmum hópum, svo sem eldra fólki, börnum, fötluðu fólki og fólki af erlendum uppruna, því á endanum er það fólkið sem skiptir mestu máli.