Almannavarnir og áfallaþol Íslands.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir þessa mikilvægu umræðu, hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin og öðrum hv. þingmönnum fyrir sín uppbyggilegu innlegg. Þegar kemur að viðbrögðum við vá er skipulag grundvallaratriði. Aðalatriðið er að skipulagið sé skilvirkt, hraðvirkt, boðleiðir séu stuttar og allir viti hvað þeir eigi að gera. Eins er mikilvægt að enginn misskilningur sé um boðleiðir og allir viti hvar ákvörðunarvaldið liggur. Því miður var það svo þegar Almannavarnir ríkisins voru lagðar niður og verkefnið fært yfir til ríkislögreglustjóra að þá komu upp flöskuhálsar og að sögn þeirra sem unnu í kerfinu á þeim tíma datt ákveðinn nauðsynlegur sveigjanleiki út.
Á þeim tíma sem liðinn er síðan hafa ýmsir agnúar verið sniðnir af og kerfið er betra í dag en það var þá og ég vil taka undir með ráðherra um að tilkoma þjóðaröryggisráðs var mikilvægt skref. Engu að síður erum við Íslendingar með afar sérstakt kerfi þegar kemur að almannavörnum og gríðarlega stór hluti af kerfinu treystir algerlega á sjálfboðaliða. Fyrir okkur sem þjóð er það í annan stað algerlega stórkostlegt að svo mörg séu tilbúin til að leggja lið, og ég vil nota þetta tækifæri til að færa þeim mínar bestu þakkir, en í hinn stað blasir við að ef álagið eykst meira en nú, sem ekki er útilokað miðað við það sem við vitum í dag og bent hefur verið á, getum við lent á þeim stað að við verðum í vandræðum.
Nú er verið að vinna að endurskoðun á verklagi ríkislögreglustjóra þegar kemur að almannavörnum og ný almannavarnalög eru í undirbúningi. Það er von þess sem hér stendur að tekið verði tillit til eftirfarandi þátta:
Í fyrsta lagi að tryggt verði að boðleiðir verði eins stuttar og mögulegt er.
Í öðru lagi að betur verði stutt við starfsemi björgunarsveitanna sem eru hryggjarstykkið í viðbrögðum okkar og að fjármagn frá ríkinu komi til sem fari í þjálfun, aðbúnað og starf.
Í þriðja lagi að styðja við og styrkja þær stoðir sem eru hjá ríkinu sjálfu, fyrst og fremst lögregluembættin úti á landsbyggðunum sem og Landhelgisgæsluna. Það hefur nokkuð skort á hjá núverandi ríkisstjórn þar sem fjárskortur hefur háð þessum stofnunum sérstaklega og hefur t.d. birst í því að upp kom tillaga í fyrra að selja flugvél Landhelgisgæslunnar, sem því miður er meira og minna í útleigu hjá Frontex til að afla Gæslunni fjár.
Ég vil að lokum þakka fyrir umræðuna um þetta mikilvæga mál. Það er öllum ljóst að almannavarnir eru okkur hér á þessu harðbýla landi mikilvægar.