154. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2024.

Almannavarnir og áfallaþol Íslands.

[16:37]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Málshefjandi veltir því fyrir sér hvort gera eigi almannavarnir aftur að sjálfstæðri stofnun sem myndi þá heyra undir forsætisráðuneytið. Í þessu sambandi verður að hafa í huga að flestallir viðbragðsaðilar heyra undir dómsmálaráðuneytið þannig að það er heilmikið samspil þarna á milli ráðuneytisins og viðbragðsaðila. Við höfum ríkislögreglustjóra sem er með almannavarnadeildina og við höfum Landhelgisgæsluna, við höfum lögregluembættin og við höfum síðan samning dómsmálaráðuneytisins við Landsbjörg. Það fyrirkomulag sem við höfum núna er því skilvirkt og gerir það að verkum að allar boðleiðir eru stuttar og ábyrgð hvers og eins er skýr. Þannig að ég myndi telja, frú forseti, að þetta henti íslensku stjórnkerfi ágætlega. Forsætisráðherra sinnir síðan samhæfingarhlutverki innan ríkisstjórnarinnar. Ef almannavarnir væru teknar út úr embætti ríkislögreglustjóra og yrðu aftur til í lítilli stofnun sem yrði væntanlega óhagkvæm í rekstri þá gæti skort á þann slagkraft sem þarf í stóru almannavarnaviðbragði.

Aðeins varðandi áfallaþolið. Ef við stæðum frammi fyrir stærri og meiri atburðum þá erum við í samstarfi og í góðu samtali við nágrannaþjóðirnar og Bandaríkin. Í síðustu viku var hér í heimsókn yfirmaður norska hersins þar sem rætt var um þessi mál og eru Norðmenn boðnir og búnir að aðstoða ef þörf er. Bandaríkjamenn eru síðan hér með nokkur hundruð manns hér að staðaldri og aðstoð frá þeim er auðfengin. Síðan er rétt að geta þess að rekstur Landhelgisgæslunnar á Keflavíkurflugvelli getur haldið áfram þrátt fyrir að tjón yrði á innviðum eins og heitu og köldu vatni. Gæslan hefur þannig yfir að ráða öflugum dísilstöðvum sem framleiða rafmagn þannig að við erum ágætlega búin, frú forseti, að hýsa viðbragðsaðila erlendis frá ef þess gerist þörf.

Að lokum þetta: Það er nú einu sinni þannig í þessu og svo mörgu öðru að það er hægt að betrumbæta hlutina (Forseti hringir.) og eins og komið hefur fram hér þá er vinna í gangi við að endurskoða almannavarnalögin og gert ráð fyrir frumvarpi á haustmánuðum. (Forseti hringir.) Ég fagna því að sjálfsögðu og þá er hægt að koma þeim athugasemdum á framfæri sem þörf þykir fyrir.