154. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2024.

Almannavarnir og áfallaþol Íslands.

[16:40]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Nú eftir heimsfaraldur Covid og nú á þeim tímum sem jarðhræringarnar og eldsumbrotin á Reykjanesskaga eiga sér stað er gríðarlega mikilvægt að huga að þessum þáttum sem hér er verið að fjalla um, almannavörnum og áfallaþoli Íslands. Miklar líkur eru á því að við séum að fara í tímabil mikilla eldsumbrota og jarðhræringa á Reykjanesskaga, sennilega um lengri tíma. Menn hafa minnst á Kröfluelda m.a. í því samhengi, sem stóðu í tíu ár.

Annað sem er mikilvægt og er hér til umfjöllunar er að við þurfum alltaf að muna, og það er aðalatriði í þessu máli, að við lifum í einstöku landi á Atlantshafshryggnum, á milli tveggja flekaskila og það munu alltaf vera eldsumbrot. Við lifum líka í landi þar sem er mikilla veðra von. Ég tel að það sé mikilvægt að gera áætlanir um áfallaþol landsins, hafa þær tilbúnar þó svo að þegar þar að kemur þá standist ekki áætlanirnar. En það er mikilvægt að gera þær.

Varðandi samstarf við Norðurlöndin og Evrópusambandið, eins og hér kemur fram í punktunum varðandi áherslur hér til umræðu, þá má ekki heldur gleyma Bandaríkjunum og Norður-Ameríku. Við getum minnst þess að í eldsumbrotunum í Heimaey 1973 þá fengum við mikla aðstoð frá Bandaríkjunum, bandaríska varnarliðinu hér, og einnig frá Norðurlöndunum, ekki síst frá Noregi, t.d. komu viðlagasjóðshúsin og annað þaðan. Ég treysti því og trúi að samstarf á alþjóðavísu sé virkt og mikilvægt og við erum ekki of stolt til að biðja um aðstoð ef þess þarf, síður en svo, held ég.

Þegar kemur að álagi á almannavarnir og hvort þurfi að fjölga starfsmönnum og auka fjármögnun til almannavarna þá hlýtur stofnunin að gefa skilaboð, eða ríkislögreglustjóri, og dómsmálaráðuneytið um það ef þarf að fjölga starfsmönnum og auka fjármagn til almannavarna. Ég efast ekki um að Alþingi Íslendinga sé tilbúið að auka fjármagn til almannavarna sé þess þörf. (Forseti hringir.) Við sjáum t.d. núna í Grindavík varðandi mál sem eru í fjárlaganefnd um íbúðarhúsnæði og fleira að það er allur vilji hér til að standa á bak við Grindvíkinga (Forseti hringir.) og standa að baki sterkum almannavörnum í landinu.