Almannavarnir og áfallaþol Íslands.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka málshefjanda og hæstv. ráðherra fyrir að fjalla um þessi mikilvægu mál í þingsal. Okkur Íslendingum hefur verið skilað hratt í gegnum reynsluskóla náttúruhamfara á síðustu 30 árum og á ljóshraða síðustu fjögur ár. Þá má líka ætla að almannavarnir muni aukast á komandi árum. Á síðustu 30 árum höfum við orðið fyrir nokkrum áföllum. Fyrstu viðbrögð eru auðvitað góð viðbragðsáætlun til að bjarga lífi og eignum en það skiptir máli að sú viðbragðsáætlun taki mið af afleiðingum hverrar aðgerðar eins og hægt er.
Árið 2021 kom út skýrsla um stefnu stjórnvalda í almannavörnum og öryggismálum. Þar er komið inn á endurreisn eftir hamfarir þar sem segir, með leyfi forseta:
„Mikilvægur þáttur í endurreisn er að draga lærdóm af vá og viðbrögðum við henni til þess að stuðla að stöðugum umbótum á forvörnum og viðbragðskerfinu í heild.“
Vissulega er almannavarnastig bundið við óvissu, hættu og neyðarstig. Endurreisn samfélags sem orðið hefur fyrir stóru áfalli er líka viðamikið verkefni og því mikilvægt að í viðbragðsáætlun við hættu felist hugsun um hvernig einstaklingur eða heilt samfélag komi undan áfallinu. Sérstaklega þarf að huga að börnum og unglingum í kjölfar slíkra áfalla. Sagt er að áföll erfist og jafnvel breyti erfðaefnum fólks. Þetta er sannað og það ber að hafa í huga í endurreisn samfélaga að það taki nokkrar kynslóðir að rétta af kúrsinn, ef það gerist einhvern tíma. Við eigum hvert með öðru reynslu af slíkum dæmum og vísbendingum og rannsóknum miðar áfram í þessum efnum og sýna með skýrari rökum að þetta er rétt. Það er því mikilvægt að tryggja rýni í kjölfar áfalla til þess að læra megi af fenginni reynslu. Því þurfa almannavarnir stöðugt að vera í endurmati og við þurfum að spegla almannavarnir út frá hverju samfélagi fyrir sig.