154. löggjafarþing — 64. fundur,  5. feb. 2024.

Almannavarnir og áfallaþol Íslands.

[16:44]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Við erum reglulega minnt á það, Íslendingar, í hvers konar landi við búum, hvort sem það eru óveður, ofanflóð, heimsfaraldrar, jarðskjálftar eða eldgos. Þá fáum við oft að reyna á eigin skinni að náttúruöflin fara sínu fram og að maðurinn má sín stundum lítils þegar mest gengur á. En þótt við ráðum ekki endilega við náttúruöflin þá ráðum við okkar eigin viðbragði við yfirstandandi ógn og þeirri hættu sem getur orðið í framtíðinni. Lykilatriðið í þessu er auðvitað öflugt og gott vísindastarf sem þarf að vera grunnur að viðbragði á hverjum tíma. Viðbragð okkar við eldgosum og jarðskjálftum byggir auðvitað á þeirri þekkingu sem við höfum aflað á þeim sviðum. Það sama á við um ofanflóð, aftakaveður eða skæðar veirur. Ef við vanrækjum vísindastarfið þá erum við um leið að veikja viðbragðið, það segir sig sjálft. Góð og mikil þekking á kröftunum sem skapa hættuna er alger frumforsenda þess að verja fólk, mannvirki og innviði. Ég held að það sé óhætt að fullyrða að þótt við séum ekki endilega sammála um það nákvæmlega hvernig fjármunum ríkisins er best varið þá erum við að mestu sammála um að ríkisvaldið hafi þá frumskyldu að tryggja öryggi okkar eins og frekast er unnt gegn allri náttúruvá. Samhugur þjóðarinnar þegar slíkir atburðir verða er auðvitað besti vitnisburðurinn um það. Það hefur reynt gríðarlega mikið á almannavarnir á síðustu árum og það er rétt sem hér hefur komið fram að almannavarnir eru undirmannaðar og álagið er mikið. Þessu verðum við að breyta. Við höfum ofur einfaldlega ekki efni á því að vanrækja þennan þátt almannaöryggis. Í þessu samhengi langar mig líka að nefna að við höfum heldur ekki efni á því að taka fjármagn sem ætlað er í uppbyggingu varnarmannvirkja og nýta það í annað. Um það eru því miður dæmi.

Að lokum vil ég segja að við stöndum öll í þakkarskuld við þá sem hlutverk eiga í almannavarnakerfinu okkar, ekki síst þeim sem alltaf eru til taks með engum fyrirvara, jafnvel launalaust. Sú fórnfýsi verður seint fullþökkuð.