Almannavarnir og áfallaþol Íslands.
Frú forseti. Mig langar að byrja á því að þakka öllum hv. þingmönnum sem tóku þátt í umræðunni og hæstv. forsætisráðherra fyrir að taka því vel að fara í sérstakar umræður um þetta mál. Í umræðunni hér hafa fram komið margir mikilvægir punktar. Við erum eiginlega öll sammála um það að tryggja þarf aukið fjármagn til allra viðbragðsaðila og að fjölga þarf í starfsliði almannavarna. Við erum líka sammála um það að viðbragðið snýr líka að fólkinu sjálfu og samfélaginu og við megum aldrei gleyma því þegar áföllin gerast.
Við þurfum líka að muna að fyrirbyggjandi aðgerðir spara. Það hefur verið sýnt fram á það að fyrir hverja 1 kr. sem eytt er í fyrirbyggjandi aðgerðir þá sparast 6 kr. í viðbragð. Við þurfum að læra af aðgerðunum og rétt eins og hv. þingmaður nefndi hér áðan þá sakna ég einnig rannsóknarnefndar almannavarna. Við þurfum, eins og hæstv. ráðherra benti á, að endurhugsa hlutverk almannavarnaráðs og svo mætti lengi telja. Við þurfum að hugsa í lausnum. Við þurfum að hugsa hvernig við gætum t.d. ráðið tímabundið eitthvað af því björgunarsveitarfólki sem er til staðar og hefur verið að gera þetta. Sumir gætu kannski haft áhuga á því. Við þurfum líka að hugsa það svolítið að það er mikið álag á nærumhverfið í því kerfi sem við erum með í dag. Það er allt að lenda á Suðurnesjum akkúrat núna.
Að lokum langar mig að segja að það er von mín að þessi umræða hefji þverpólitíska vinnu við að bæta sviðsmyndir áfalla framtíðarinnar.