Almannavarnir og áfallaþol Íslands.
Frú forseti. Ég tek undir þakkir málshefjanda til hv. þingmanna fyrir að taka þátt í þessari umræðu. Mér finnst mjög mikilvægt að það komi fram, af því að ég hef nú gegnt mínu embætti í á sjöunda ár, að Stjórnarráðið hefur unnið mjög vel saman þegar kemur að því að bregðast við, hvort sem er náttúruvá eða annarri vá. Ég get alveg sagt það hér að Stjórnarráðið vinnur ekki alltaf vel saman en í slíkum tilfellum höfum við unnið mjög vel saman og eins hefur forsætisráðuneytið átt mjög gott samstarf við ólíkar stofnanir, hvort sem er almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, Veðurstofuna eða heilbrigðiskerfið þegar faraldur gekk yfir. Ég get því ekki sagt annað um það og ég get ekki tekið undir orð þeirra sem draga í efa viðnámsþrótt stjórnkerfisins þegar vá ber að dyrum. Hann er mikill. En það þýðir ekki að við verðum ekki að horfast í augu við það að almannavarnadeildin, svo ég taki það dæmi sérstaklega, hefur verið undir gríðarlegu álagi í mörg ár og fjöldi stöðugilda hreinlega annar ekki því álagi. Við verðum einfaldlega að horfast í augu við það.
Hv. þm. Sigmar Guðmundsson nefndi hér vísindastarfið og ég ætla líka að fá að taka undir það að við horfum stundum sérstaklega á grunnrannsóknir og nýsköpun en gleymum stundum öllum þeim rannsóknum sem er verið að sinna á náttúru landsins sem eru alger undirstaða fyrir öflugt viðbragð þegar eitthvað gerist. Þetta þurfum við að ræða sérstaklega. Ég vil segja það líka að það þarf að taka til skoðunar þetta ytra eftirlit. Rannsóknarnefnd almannavarna var felld úr lögum. Við þurfum að ræða hvernig við ætlum að takast á við það af því að það liggur alveg fyrir að öll viðbrögð þegar vá ber að dyrum munu alltaf vera gagnrýnd á einhverjum tímapunkti og það skiptir máli að ferlarnir séu skýrir.
Svo aðeins um alþjóðasamstarfið. Þar hef ég beitt mér fyrir því og sérstaklega á norrænum vettvangi að ræða í auknum mæli um áfallaþol og viðnámsþrótt samfélaga. (Forseti hringir.) Það var aðalumræðuefnið á fundi norrænna forsætisráðherra í Vestmannaeyjum á síðasta ári því þar getum við svo sannarlega unnið þéttar saman og líka þó að við horfum víðar en bara á Norðurlöndum.