154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

sjávargróður og þörungaeldi.

342. mál
[16:54]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Fyrirspurn mín til hæstv. matvælaráðherra lýtur að sjávargróðri og þörungaeldi:

1. Stendur yfir undirbúningur að vinnslu frumvarps um þörungaeldi, hvort heldur sem er sjávar- eða ferskvatnsgróður?

2. Er verið að efla rannsóknir og þekkingu á þang- og þörungaeldi og ræktun sjávargróðurs?

3. Hyggst ráðherra leggja fram heildstæða löggjöf um málið?

Í dag er ein grein í lögum um stjórn fiskveiða sem lýtur að nýtingu sjávargróðurs, í kaflanum um sjávargróður, einungis ein grein, 15. gr. b. Svo erum við með eina stutta reglugerð um öflun sjávargróðurs. Ég tel að það skorti algerlega löggjöf á þessu mikilvæga sviði og þetta er mikið framtíðarsvið, mikil framtíðaratvinnugrein. Ég get tekið sem dæmi að í Noregi er talið að möguleiki sé á að framleiða 20 milljónir tonna af þangi og þara. Það samsvarar verðmætasköpun upp á 40 milljarða norskra króna á ári. Við stöndum okkur ekki. Við höfum gríðarleg tækifæri á þessu sviði með Breiðafjörðinn, Strandirnar og fleiri landsvæði og Vestfirði sem hafa mikið af þangi og þara sem má vinna. Það er algerlega óforsvaranlegt að við séum einungis með eina lagagrein um þetta í lögum um stjórn fiskveiða. Hér er um mikilvæga atvinnugrein að ræða sem gæti verið til framtíðar og Norðmenn hafa litið á þetta sem næsta útflutningsævintýri. Við virðumst ekki vera að gera neitt. Þessi eina lagagrein, 15. gr. b, er engan veginn fullnægjandi.

Ég var um daginn á ráðstefnu sem var haldin hér á vegum frumkvöðuls og samtaka um þang og þararæktun og hitti þar Bandaríkjamann frá Maine-ríki. Hann sagði strax: Ef það á að fara að fjárfesta í þessu, erlendir fjárfestar eiga að koma hingað, þá þarf löggjöf um málið, það þarf reglur um það. En þær virðast ekki vera til á nokkurn einasta hátt. Þessi tækifæri lúta ekki einungis að því að hér er t.d. afurð sem gæti gefið af sér matvæli, sjávarafurð, joðrík og mjög holl sjávarafurð. Þetta lýtur líka að því að þang og þari eru meðal stærstu aðila, eða hvað á að kalla það, í bindingu koltvíoxíðs, CO2 í heiminum þannig að þetta snýr líka að loftslagsmálum sem ég veit að er settum hæstv. matvælaráðherra í dag mikið hugðarefni. Þetta er gríðarlega mikilvægt og það mætti sennilega setja peningana sem eiga að fara í loftslagsmálin í þang- og þararæktun í landinu og efla þá atvinnugrein sem er raunverulega mjög lítil og bundin við Breiðafjörðinn, eitt eða tvö fyrirtæki þar.

Spurningin er þessi: Er ekki örugglega verið að vinna að löggjöf um þetta, heildstæðri löggjöf? Og ekki bara löggjöf, það þarf líka að mennta og auka þekkingu á þessu sviði. Þarna eru gríðarleg tækifæri fyrir landsbyggðina og Ísland. Ég vísa til þess sem ég sagði um Noreg, 40 milljarðar norskra króna er gríðarlegur peningur. Ef við reiknum það með 13 þá erum við að tala um 600 milljarða. Það munar um minna í íslensku samfélagi.