sjávargróður og þörungaeldi.
Frú forseti. Ég mun leitast við að svara hv. þingmanni um þetta áhugaverða mál. Eins og kunnugt er þá hefur staðið yfir stefnumótun um lagareldi í matvælaráðuneytinu um nokkra hríð og sú stefna, þ.e. um uppbyggingu og umgjörð lagareldis til 2040, var kynnt hagaðilum í byrjun október síðastliðnum. Stefnan sem þar er sett fram nær yfir sjókvíaeldi, landeldi, úthafseldi og þörungaræktun og byggði m.a. á nýsamþykktri matvælastefnu, stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar og greiningarvinnu Boston Consulting Group. Hvað varðar sérstaklega þörungaeldi má nefna að í skýrslu Boston Consulting Group eru dregnar upp sviðsmyndir um möguleika þörungaeldis en þar er kastljósinu einkum beint að leyfisveitingaferlinu sem skýrsluhöfundar töldu að þyrfti að skýra og einfalda. Stefnumótunarskjalið var lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda og þar var sett fram sameiginleg framtíðarsýn til ársins 2040 fyrir allar undirgreinar lagareldis, þ.m.t. þörungarækt, og fjallað um markmið hverrar greinar til að framtíðarsýnin gæti orðið að veruleika. Alls bárust 86 umsagnir. Þar af voru tvær sem sérstaklega miðuðu að þörungaeldi. Önnur þeirra kom frá Þörungaverksmiðjunni þar sem var bent á að þörungar og fiskur eru afar ólíkar lífverur og það væri erfitt að fjalla um þær með sambærilegum hætti og ræktun á þörungum væri ólík eldi á fiskum. Því var lagt til að skoðað yrði af alvöru að þessi verkefni yrðu algerlega aðgreind, þ.e. ef lög yrðu samin um lagareldi yrði unnið annað regluverk um þörungarækt.
Í byrjun desember 2023 voru drög að frumvarpi um lagareldi birt í samráðsgátt og þar er sérstaklega tekið fram í gildissviðsgreininni að lögin gildi ekki um ræktun og nýtingu sjávargróðurs. Það var sem sagt niðurstaða sérfræðinga matvælaráðuneytisins. Hún er í fullu samræmi við umsögn Þörungaverksmiðjunnar sem ég nefndi hér áðan. Í greinargerð með frumvarpsdrögunum er tekið fram að í frumvarpinu sé ekki að finna reglur um ræktun smáþörunga og stórþörunga þó að stefnumótunarvinna hafi verið unnin fyrir báðar greinar og ástæðan er tvíþætt. Í fyrsta lagi hefðu ný lög um lagareldi líklega orðið öllu umfangsmeiri og þyngri í vöfum en æskilegt væri ef þau tækju einnig til þörungaræktar. En í öðru lagi, eins og hv. þingmaður bendir hér á, virðast vaxtarmöguleikar þörungaræktunar til framtíðar vera miklir. Því er það mat ráðuneytisins eftir að hafa farið yfir þessi mál að það sé rétt að það gildi sérstök lög um þessa atvinnugrein. Í öllu falli stóð ekki til að settar yrðu sérstakar reglur um smáþörungarækt enda umhverfisáhrif hennar eins og hún er nú stunduð hverfandi samanborið við ýmsar aðrar greinar lagareldis. Þá standa rök til þess að heildstætt regluverk taki bæði til ræktunar og nýtingar á villtum stórþörungum. Og þá kem ég kannski að spurningu hv. þingmanns, en vinna við gerð sérstaks frumvarps þess efnis er sem sagt fyrirhuguð í matvælaráðuneytinu. Það er ekki á þingmálaskrá þessa vetrar enda önnur stór mál á henni en þetta verður næsta skref.
Mig langar aðeins að nefna hér matvælasjóð sem var settur á fót árið 2020. Hann er á forræði matvælaráðherra og hlutverk hans er að styðja við þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaði og sjávarútvegi. Við styrkveitingar úr sjóðnum hefur verið lögð áhersla á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskra matvæla. Þessi sjóður gegnir auðvitað mikilvægu hlutverki þegar kemur að því að styðja við nýsköpun og þróun atvinnugreinar sem í framtíðinni mun geta skilað miklum verðmætum. Ég vil vekja athygli á því að nokkur fjöldi verkefna sem tengjast framleiðslu og nýtingu á þörungum hefur fengið styrk úr matvælasjóði frá því að sjóðurinn var stofnaður árið 2020 eða 11 verkefni sem hafa fengið samtals um 100 millj. kr. Ég vil ítreka að mér finnst mjög mikilvægt að við styðjum við áframhaldandi rannsóknir á þessu sviði og þar gegnir matvælasjóður mikilvægu hlutverki.
Eins og ég nefndi í máli mínu er ný heildstæð löggjöf um þang- og þörungaeldi ekki á þingmálaskrá yfirstandandi þings en fram undan er vinna við gerð sérstaks frumvarps sem tæki bæði til ræktunar og nýtingar á villtum stórþörungum. Sú vinna er fyrirhuguð í matvælaráðuneytinu.