sjávargróður og þörungaeldi.
Virðulegi forseti. Ég vil eins og fleiri þakka fyrir þessa fyrirspurn. Það er mikilvægt að það verði áfram unnið að þessum málum. Ég sé fyrir mér að við getum, ef rétt er á málum haldið, farið inn í ákveðið umhverfi aukinnar nýsköpunar á þessu sviði. Ég vil því taka undir það sem sagt hefur verið hér um að hraða vinnslu á þessu máli þannig að þingið geti sem fyrst tekið afstöðu til þess og mótað heildstæða stefnu í þessum málum. Sóknarfærin eru víða og m.a. á þessu sviði og ég tel mikilvægt að það verði hér ákveðinn einhugur í því að reyna að grípa þau að ákveðnum prinsippum sögðum. Við þurfum náttúrlega að huga að ákveðnum grundvallarprinsippum varðandi umhverfisvernd, varðandi náttúru og líka varðandi eðlileg auðlindagjöld og eðlilegt réttlæti sem fylgir slíkum rekstri. En fyrst og síðast þurfum við að halda áfram með þetta, helst í samvinnu allra flokka, til þess að við getum farið inn í ákveðna framtíð með m.a. enn öflugra þörungaeldi heldur en við erum að sjá núna.