sjávargróður og þörungaeldi.
Virðulegur forseti. Ég þakka umræður sem hér hafa átt sér stað og svar hæstv. matvælaráðherra. Ég tel að hér sé um gríðarlega mikilvæga löggjöf að ræða og framtíðariðnað sem gæti skilað þjóðarbúinu gríðarlega miklum tekjum. Það er mikilvægt að lagaumhverfið sé gott og rétt, að við rjúkum ekki af stað eins og með ferðaþjónustuna, greinin vaxi og svo komi lögin eftir á. Við sjáum það sama í öðrum atvinnugreinum eins og laxeldinu. Hér höfum við tækifæri til þess að vera á undan bylgjunni, setja reglurnar um atvinnugreinina, löggjöfin sé góð og örugg og það verði séð til þess að svæði sem eru til þess bær séu nýtt til þang- og þörungaeldis og þang- og þarasláttar. Auðvitað eru rannsóknir gríðarlega mikilvægar og ég skora á hæstv. matvælaráðherra að setja meira í rannsóknir á þessu sviði.
En þetta lýtur ekki eingöngu að rammanum utan um atvinnugreinina. Ef ég tek dæmi frá Noregi þá eru þar svokölluð „sjømatsloven“, með leyfi forseta, sjómatslögin. Þang og þari hafa hingað til ekki verið í þeim lögum en það á hins vegar að setja þetta þar þannig að það heyri undir sjómatslögin. Þar undir er svokallað sjómatsráð og þetta ráð er nokkuð frægt. Þið þekkið öll að laxeldi er gríðarlega stór iðnaður í Noregi og þetta ráð kynnti það að lax ætti heima í sushi. Við skulum muna það þegar við borðum sushi, þá er yfirleitt lax í því, að það voru upphaflega Norðmenn sem ákváðu að lax ætti að tilheyra sushi-mat. Það eru gríðarleg tækifæri líka á þessu sviði með þang og þara. Eins og ég sagði áðan þá lýtur þetta líka að loftslagsbreytingum og ekki síst er þetta gott til eldis, ekki bara manneldis heldur líka fyrir kýr. Mér skilst að ef þetta er gefið kúm í Hollandi þá geti það stórlega minnkað útblástur gróðurhúsalofttegunda hjá þeim dýrum. Við gætum jafnvel fært þetta undir fjárveitingar til loftslagsmála.
Ég held að þetta sé mikilvægur iðnaður sem hentar einmitt Íslandi mjög vel, bæði sem þekkingariðnaður (Forseti hringir.) og nýsköpunariðnaður og gríðarleg verðmætasköpun sem þarna er möguleg. (Forseti hringir.) Ég skora á ráðherra að taka þessi mál alvarlega og koma með frumvarp á næsta þingi.