154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

áhættumat vegna hugsanlegra jarðhræringa og eldsumbrota.

637. mál
[17:20]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Mig langar að byrja á að þakka fyrirspyrjanda fyrir mjög mikilvæga spurningu. Í öllu starfi okkar, hvort sem það er að skipuleggja byggð, hvort sem það er að gera það sem við töluðum um áðan, almannavarnir og annað, þá þurfum við áhættumat. Við þurfum áhættumat byggt á góðum gögnum. Þessi gögn þurfa að vera aðgengileg, ekki bara þeim sem vinna við áhættumatið, heldur þurfa gögnin sjálf að vera aðgengileg, ekki bara skýrslur og kort. Þegar kemur að því að búa til svona áhættumat þá eru tvö ár allt of langur tími og við þurfum að hafa það í huga að þegar við erum að eiga við aðgerðir vegna náttúruhamfara tefur það alla vinnu við áhættumat og annað. Við þurfum líka að hafa í huga að áhættumat er fyrsta skrefið í að búa til viðbragðsáætlanir. Þær þurfum við að uppfæra reglulega. (Forseti hringir.) Í viðbragðsáætlunum fyrir Kötlugos var gert ráð fyrir að það þyrfti að flytja 230 bændur af svæðinu. Nú eru 4.000 ferðamenn á svæðinu.