áhættumat vegna hugsanlegra jarðhræringa og eldsumbrota.
Frú forseti. Ég þakka hv. málshefjanda og hv. þingmönnum sem hér hafa komið með athugasemdir. Fyrir bæði stjórnvöld og Alþingi er þetta eitt mikilvægasta málið sem við stöndum frammi fyrir. Við erum með góð gögn að mörgu leyti og náttúruvárskýrsluna vil ég sérstaklega nefna, hún dregur þetta ágætlega upp, sýnir að váin er margþætt og hún hefur margþætt áhrif. Hún getur haft gríðarleg efnahagsleg áhrif, hún getur haft mjög mikil samfélagsleg áhrif. Hættumatið og áhættumatið er auðvitað algjört lykiltæki en líka viðbragðsáætlanir sem ekki eingöngu snúast um að geta brugðist við þegar eitthvað dynur á, snúast ekki bara um að verja innviði. Við höfum auðvitað verið að leggja töluvert mikla krafta í að bæta innviði okkar þannig að þeir hafi meira áfallaþol.
Það sem mig langaði að nefna líka eru þessi samfélagslegu áhrif. Náttúruvá hefur auðvitað mikil áhrif á heil samfélög en líka einstaklingana sem þar búa. Við skynjum það núna í Grindavík, við þekkjum það frá Vestmannaeyjum, þekkjum það frá þeim byggðarlögum sem hafa lent í snjóflóðum þar sem fólk upplifir áfallið hvert og eitt, en líka áfall sem samfélag. Ég held satt að segja, út frá þeim mikilvægu rannsóknum sem hafa verið unnar hér á landi á áföllum, að þar höfum við bæði mikilvægri reynslu að miðla en við eigum ekki að gleyma þessum þætti í rannsóknunum. Á sama tíma og við eigum að leggja aukinn kraft í grunnrannsóknir á náttúruvá þá eigum við líka að huga að eftirköstunum og hvernig er hægt að takast á við þau áföll sem við vitum að mörg hafa lent í hér á landi í gegnum söguna, sem við höfum stundum ekkert rætt mikið um. Ég vil halda því til haga, það verður stundum út undan í þessari umræðu en ég held að við eigum líka að halda því til haga.