sólmyrkvi.
Frú forseti. Það er í mörg horn að líta og eins og hæstv. ráðherra nefnir þá fellur nú sumt af því sem snertir möguleg viðbrögð undir verksvið umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og hann mun fá sitt tækifæri af því að fyrirspurn liggur fyrir til þess ráðherra. En mig langaði að spyrja hæstv. innviðaráðherra vegna þess að það þarf hvort eð er að bæta vegtengingu við Látrabjarg. Sá vegur hefur verið í slæmu ástandi í mörg ár en engu að síður hefur framkvæmdafé sem er ætlað þeim vegi ekki ratað alla leið. Ef ég man rétt þá náðist ekki að ráðstafa fé sem var ætlað á síðasta ári í að bæta tengingar við Látrabjarg þannig að sá peningur var nýttur í að bæta tenginguna á milli Patreksfjarðar og Bíldudals, minnir mig, einhverjar litlar framkvæmdir á þeim vegi. Það er stuttur tími fyrir höndum. Þetta er ekkert spurning um hvort ríkisvaldið ætli að skipuleggja eitthvað eða annað á einum stað. Þetta er einfaldlega sú staðreynd, langar mig að segja, að það verður mikil ásókn í þennan punkt vegna þess að hápunktur sólmyrkvans verður á Látrabjargi. Þar mun hann standa lengst, hann verður í 2 mínútur og 13 sekúndur við Látrabjarg en í Reykjavík ekki nema 1 mínútu. Hörðustu sólmyrkvaaðdáendur munu vilja fara þangað. Þannig að spurningin er í rauninni, í ljósi þess að það þarf hvort sem er að byggja upp tengingar við Látrabjarg: Væri ekki upplagt að slá í klárinn og ljúka því verki fyrir sumarlok 2026?