154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

gervigreind.

650. mál
[17:49]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Frú forseti. Þetta er kannski lykilatriðið í því sem hæstv. ráðherra sagði, að þegar verið var að skoða einhverjar mögulegar lausnir og möguleg tækifæri — sem þarf að skoða, við þurfum sífellt að skoða hvað er hægt að gera betur og hraðar og skemmtilegar o.s.frv. — þá væru komnar einhverjar nýjar og ódýrari leiðir en fyrir tveimur árum síðan. Það er pínulítið það sem ég hef áhyggjur af varðandi stjórnsýsluna, hún hreyfir sig hægt og á þeim hraða sem hún hreyfir sig er einmitt komið eitthvað nýtt þegar loksins er búið að taka ákvörðun. Stundum er þá gamla útgáfan notuð eða eitthvað því um líkt og það er strax orðið úrelt. Við þurfum, held ég, að læra dálítið á nýsköpunarhugsun í stjórnsýslunni, að hún hreyfi sig með þróuninni á mun skilvirkari hátt. Stjórnsýslan eins og ég hef upplifað hana aðeins hefur ekki gengið í takt við tækniþróunina og möguleikana sem eru í boði til þess að sinna verkefnum á hraðari og skilvirkari og skemmtilegri hátt.

Mig langaði til að skilja smáhugvekju eftir hjá ráðherra sem ég veit að hefur haft mjög mikinn áhuga á kvikmyndagerð og þáttagerð og svoleiðis. Ég held að það sé ekkert rosalega langt í það, fólk getur túlkað það með sínum skilningi, lengi er teygjanlegt hugtak í því samhengi, að það verði hægt að íslenska kvikmyndir og þætti á hvaða tungumáli sem er, bara á nóinu, meira að segja þannig að varir og slíkt hreyfist í takt og jafnvel meira að segja að búa til kvikmyndir og þætti eftir beiðni. Mér fannst Firefly rosalega skemmtilega sería og ég vil sjá seríu númer tvö, getur þú búið hana til fyrir mig? Þá verður Netflix þannig að næsta sería verður bara sniðin fyrir mig og ég get kannski valið þennan og þennan leikara (Forseti hringir.) sem verða þá að hafa gefið leyfi fyrir því að láta nota sig í slíkri þáttagerð.