gervigreind.
Virðulegi forseti. Ég get alveg tekið undir það hjá hv. þingmanni að það er gríðarlega mikilvægt að framkvæmdarvaldið og löggjafinn hreyfi sig eins hratt og við mögulega getum til að mæta þessu spennandi umhverfi en líka þeim áskorunum sem fylgja því. Ég tel að sú stefnumótun sem við höfum verið í og sú vinna sem við munum kynna mjög fljótlega, vonandi á næstu tveimur vikum, muni sannfæra hv. þingmann um að við séum á réttri leið. En það verður líka að viðurkennast að við viljum heldur ekki taka ákvarðanir sem við teljum að geti orkað tvímælis, þ.e. ef fljótlega er komin ný lausn og ódýrari. Við erum með, myndi ég segja, okkar færasta fólk í að fylgjast með þessu, bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum, og okkar vísindamenn. Ég ætla bara að hrósa öllum þeim sem tóku þátt í fyrstu máltækniáætluninni vegna þess að þetta var alveg gríðarleg samvinna og samstarf á algerlega nýju svæði og ég tel að við höfum tekið réttar ákvarðanir þá og ég hlakka til að kynna þessi næstu skref.
Aðeins varðandi kvikmyndaiðnaðinn og þá framþróun sem er að eiga sér stað þar. Já, við teljum að mjög fljótlega — við erum þegar byrjuð með tilraunaverkefni hvað varðar þessar þýðingar, samtímaþýðingar. Þið getið ímyndað ykkur hvað þetta er mikil réttindabót fyrir þá sem heyra illa eða eru heyrnarlausir o.s.frv. Þetta eru ekki bara mjög spennandi málefni samtímans, gervigreindin og máltæknin, heldur munu þau auka þjónustu við marga hópa þannig að við eigum að vera í fremstu röð og sinna þessu mjög vel.