154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

blóðgjafir.

207. mál
[18:05]
Horfa

Brynhildur Björnsdóttir (Vg):

Frú forseti. Mig langar bara að þakka fyrir að fá að taka þátt í þessari umræðu um málefni sem hefur brunnið mjög mikið á mér í mörg ár. Öll þekkjum við einhvern sem hefur þurft að þiggja blóð og ekki erum við öll í þeirri stöðu að geta gefið blóð á móti. Eins og hæstv. heilbrigðisráðherra sagði þá þurfum við að fjölga blóðgjöfum þannig að það að við útilokum ákveðinn þjóðfélagshóp vegna kynhneigðar gerir bara að verkum að við erum að útiloka eitthvað sem við höfum ekki efni á að missa. Við þurfum að fá alla þá heilbrigðu blóðgjafa sem við mögulega getum og þess vegna fagna ég því mjög að ekki seinna en 2025 fáum við blóð úr öllum þeim sem vilja gefa.