154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

blóðgjafir.

207. mál
[18:06]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Frú forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir það sama og ég held að ég hafi þakkað fyrir síðast, að gefa skýr svör. Það er víst alls ekki sjálfgefið í þessum sal. 1. janúar 2025 er lokadagsetning að þessu sinni. Ég ætla að vona að ég þurfi ekki að hitta hæstv. ráðherra í lok janúar 2025 til að spyrja hvort hann ætli ekki örugglega að fara alveg að klára þetta vegna þess að þetta er orðinn ansi langur tími. Þetta er farið að líta ansi mikið út eins og þáverandi hæstv. heilbrigðisráðherra hafi rúllað út þessari hugmynd rétt fyrir kosningar með enga innstæðu heldur eingöngu til að slá einhverjar pólitískar keilur án þess að ætla að klára málið. Að það taki heilt kjörtímabil að kaupa skimunarbúnað — það er það sem þarf að gera, kaupa skimunarbúnað, og það snýst ekki bara um að geta tekið við blóði frá þessum eina tiltekna hópi heldur snýst um að tryggja öryggi blóðbirgðanna allra. Það verður hægt að skima allt blóð af því að það eru ekki bara samkynhneigðir karlar með blóð sem kallar á einhverja sérstakra skimun ef við viljum halda öryggi blóðbirgða sem mestu. Kostnaður við þennan búnað er náttúrlega bara kostnaður við það að fjölga blóðgjöfum. Eins og hæstv. ráðherra nefndi þá þarf að fjölga þeim um þriðjung til að við komumst út úr því neyðarástandi sem ríkir í blóðsöfnun á landinu alltaf, árið um kring. Það er löngu tímabært að leyfa öllu fullfrísku fólki sem stundar öruggt kynlíf að láta gott af sér leiða með blóðgjöf öllu samfélaginu til heilla og þó fyrr hefði verið.