154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

bið eftir afplánun.

554. mál
[18:11]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Viðreisn hefur oft í þessum þingsal rætt um langan málsmeðferðartíma í réttarkerfinu. Það höfum við gert við nokkra dómsmálaráðherra Sjálfstæðisflokksins sem allir hafa tekið undir alvarleika málsins en svo hefur lítið gerst. Kona sem kærir nauðgun þarf enn að bíða mánuðum og jafnvel árum saman eftir að niðurstaða fáist í mál hennar um það hvort það verði fellt niður eða ákæra gefin út. Fari málið fyrir dóm er það nánast alltaf þannig að endanleg niðurstaða liggur ekki fyrir fyrr en að einhverjum árum liðnum. Það líða ár. Ekkert útskýrir þennan langa tíma annað en að of fáar hendur vinna of mörg verk. Skýringin er engin önnur. Alvarleg staða birtist líka í því að Landsréttur mildar aftur og aftur dóma í alvarlegustu sakamálum því kerfið hefur ekki þótt vinna á nægilegum hraða. Önnur hlið á stöðu mála í kerfinu birtist í því að Fangelsismálastofnun hefur síðan ekki náð að kalla dæmda menn inn í fangelsi og þetta hefur gerst í ofbeldisbrotamálum og kynferðisbrotamálum.

Í desember síðastliðnum upplýsti dómsmálaráðherra í skriflegu svari til mín að tæp tvö ár liðu að meðaltali frá því að dómur félli og þar til afplánun hæfist. Síðastliðin tíu ár fyrndust dómar fyrir ofbeldisbrot í 31 máli. Fjórir dómar fyrir kynferðisbrot fyrndust. Það eru óboðleg skilaboð til brotaþola og samfélagsins alls og það er niðurstaða sem vinnur gegn markmiðum kerfisins og samfélagsins alls um að ná fram réttlæti. Og þá er komið að efni þessarar fyrirspurnar: Hyggst hæstv. dómsmálaráðherra grípa til einhverra aðgerða til að stytta biðlista eftir afplánun í fangelsum landsins? Hyggst hæstv. dómsmálaráðherra standa þannig að fangelsisvist og fangelsismálum að þar getum við sem samfélag raunverulega farið að tala um betrun?

Forseti. Ekkert ráðuneyti hefur verið undir stjórn Sjálfstæðisflokksins lengur en dómsmálaráðuneytið. Ég verð að nefna þetta. Sjálfstæðisflokkur hefur farið með völd þar óslitið undanfarinn áratug og lengur en nokkur annar flokkur hér á landi. Á sama tíma hefur Fangelsismálastofnun sætt niðurskurði samfleytt í 21 ár. Lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað umtalsvert á sama tíma og sprenging hefur orðið í fólksfjölda og á sama tíma og allt umhverfi afbrota er að þyngjast. Þetta ástand getur ekki gengið upp og ég óska viðbragða frá hæstv. ráðherra.