154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

bið eftir afplánun.

554. mál
[18:14]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Dómsmálaráðuneytið hefur gripið til margvíslegra aðgerða til að stytta boðunarlista, m.a. í samræmi við skýrslu um tillögur til styttingar boðunarlista frá árinu 2020 og þá hefur auknum fjármunum verið veitt til málaflokksins, m.a. til að geta nýtt betur þau pláss sem þegar eru til staðar í fangelsum. Það er hins vegar mat dómsmálaráðherra að grípa þurfi til frekari aðgerða og taka til skoðunar hvort fjölga þurfi fangarýmum eða öðrum úrræðum til að fullnusta dóma. Í þeirri heildarendurskoðun sem fram undan er í málaflokknum verður þetta tekið til ítarlegrar skoðunar.

Þær aðgerðir sem gripið var til í kjölfar skýrslunnar um styttingu boðunarlista voru að lögfest var ákvæði til bráðabirgða í þeim tilgangi að rýmka heimildir til fullnustu refsidóma með samfélagsþjónustu á þann veg að unnt er nú að fullnusta allt að tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi með samfélagsþjónustu. Þá var jafnframt lögfest til bráðabirgða heimild til að veita föngum reynslulausn nokkrum dögum fyrr en ella ef sérstakar ástæður mæltu með. Þá voru tillögur um rýmri heimildir ákærenda til að ljúka málum með sáttamiðlun rýmkaðar og að sáttamiðlun yrði lögfest. Í kjölfarið var lögum um meðferð sakamála breytt þar sem lagastoð sáttamiðlunar var styrkt og ákveðnar breytingar á fyrirmælum ríkissaksóknara um sáttamiðlun voru gerðar. Að lokum var ein tillaga um veitingu skilorðsbundinnar náðunar fyrir þá sem höfðu verið lengur en þrjú ár á boðunarlista en dæmdir voru fyrir minni háttar brot og áttu ekki ólokin mál í refsivörslukerfinu framkvæmd í eitt skipti.

Flestir dómþolar senda inn umsögn um samfélagsþjónustu. Uppfylli umsækjandi skilyrði er honum tilkynnt það. Síðan er vinnustaður fundinn og viðkomandi hefur afplánun í samfélagsþjónustu. Í sumum tilvikum er dómþoli með ólokið mál sem er við það að ljúkast og er beðið eftir að sá dómur berist til fullnustu. Ef dómþoli uppfyllir ekki skilyrði er honum synjað um samfélagsþjónustu og hann boðaður til afplánunar. Dómþolar sækja gjarnan um frest á afplánun og er heimilt að veita hann í tiltekinn tíma. Þá sækja dómþolar oft um endurupptöku ákvörðunar um synjun. Rjúfi dómþoli skilyrði samfélagsþjónustu er honum gefinn kostur á að andmæla og stundum eru andmælin tekin til greina. Ef ekki tekur stofnunin ákvörðun um að afturkalla heimild til að gegna samfélagsþjónustu og dómþoli er þá boðaður til afplánunar. Þá getur viðkomandi aftur sótt um frest og er hann veittur uppfylli dómþoli skilyrði þar um. Þá kæra dómþolar oft ákvarðanir stofnunarinnar til dómsmálaráðuneytisins sem tekur tíma.

Löng bið dæmdra manna eftir afplánun í fangelsi er óásættanleg með tilliti til varnaðaráhrifa refsinga en vitað er að varnaðaráhrif verða minni þegar bið eftir afplánun getur tekið einhver ár og að auki getur slík bið verið dómþola þungbær. Það er því mikilvægt að grípa til aðgerða til að stytta þann tíma.

Að öllu framangreindu til viðbótar erum við að fara að endurskoða allt fullnustukerfið okkar og erum að byggja nýtt fangelsi og fjölga rýmum á Sogni til að geta brugðist við álagi í kerfinu.