breytingar á lögum um mannanöfn.
Hæstv. forseti. Nafnið er einhver persónulegasti og mest sérkennandi þáttur í lífi hvers einstaklings. Nafn segir sögu og merkir einstaklinginn umsvifalaust í hugum þeirra sem heyra. Það getur gefið til kynna þjóðerni, ætterni, kynferði, jafnvel aldur, trúarbrögð, menningu og hugsjónir nafngjafanna sem í langflestum tilfellum eru foreldrar. Það er því grundvallarréttur hvers einstaklings að hafa stjórn á nafninu sínu enda hefur Mannréttindadómstóll Evrópu talið að réttur manns til nafns njóti verndar 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og verði hann aðeins takmarkaður með lagaheimild ef brýna nauðsyn ber til vegna réttinda annarra.
Við Íslendingar höfum a.m.k. frá árinu 1925 búið við þrönga löggjöf þegar kemur að nafngiftum. Örlítið var rýmkað um stjórn okkar einstaklinganna á þessu persónulega einkenni 1996 en einn þáttur hefur þó mætt algjörum afgangi. Það er rétturinn til að taka upp svokölluð ættarnöfn sem víða annars staðar eru kölluð fjölskyldunöfn. Hér var í anda 19. aldar þjóðernishyggju mörkuð sú stefna í upphafi þeirrar 20. að allir Íslendingar sem ekki höfðu borið ættarnöfn eða tekið þau upp fyrir árið 1925 þyrftu að vera inni í föðurnafnakerfinu, sem talið var bera vott um glæsta fortíð þjóðarinnar og menningararf sem standa þyrfti vörð um. Hliðaráhrif af þessum verknaði löggjafans og hugsanlega tilgangur einhverra þeirra sem málið studdu var að búa til mjög sýnilega stéttaskiptingu í íslensku samfélagi þegar kom að nöfnum, enda hafði það tíðkast, einkum meðal velmegandi landsmanna, að taka upp ættarnöfn eins og kemur fram í greinargerð með því lagafrumvarpi sem spurning mín snýr að í dag.
Virðulegur forseti. Það er vitaskuld fleira sem kemur inn í þetta mál en sú aðgerð að gera íslenska ríkisborgara að sýnisgripum og eins konar þjóðminjasafni fyrir alþýðlega mannanafnahefð evrópskra miðalda, með þeirri skyldu að fólk þurfi að kenna sig við annað hvort foreldra sinna eða bæði. Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því að fólk kæri sig ekki um það; ofbeldi, ósætti eða annað sem veldur því að fólk vill skilja sig frá þeirri fortíð en hefur ekki kost á að gera það samkvæmt núverandi lögum.
Hæstv. fyrrverandi dómsmálaráðherra, Ólöf Nordal heitin, hóf þá vinnu að endurskoða þessi mál á þeim tíma sem hún gegndi embætti og afrakstur þeirrar vinnu sem var löng og vönduð leit dagsins ljós undir forystu fyrrverandi hæstv. dómsmálaráðherra, Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, árið 2020 en náði ekki að skila sér út úr allsherjar- og menntamálanefnd vorið 2021. Því miður urðu ráðherraskipti það ár sem virðast hafa orðið til þess að málið var ekki endurflutt en því spyr ég, í ljósi þeirrar vönduðu vinnu sem unnin hefur verið í þessu máli: (Forseti hringir.) Hyggst ráðherra endurflytja frumvarp til laga um mannanöfn sem lagt var fram á 151. löggjafarþingi? Hefur farið fram frekari vinna við frumvarpið í ráðuneytinu?