breytingar á lögum um mannanöfn.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir spurninguna. Lög um mannanöfn, nr. 45/1996, eru komin til ára sinna en þau hafa verið í gildi í tæpan aldarfjórðung. Lögin hafa sætt töluverðri gagnrýni en hún snýr helst að áskilnaði um að nöfn megi ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi, að þau feli í sér of strangar reglur og matskennd viðmið um val á nöfnum sem hefur orðið til þess að mörgum nöfnum hefur verið hafnað af mannanafnanefnd og að landsmenn njóti ekki jafnræðis þegar kemur að upptöku ættarnafna. Heimildir til nafnbreytinga hafa þótt sæta of miklum takmörkunum, m.a. að einungis sé heimilt að breyta nafni sínu einu sinni nema sérstakar ástæður séu fyrir hendi. Þau skilyrði að eiginnöfn skuli geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli hafa sömuleiðis verið gagnrýnd.
Þar sem samsetning þjóðfélagsins hefur tekið miklum breytingum á þeim árum sem liðin eru frá setningu gildandi laga um mannanöfn má e.t.v. segja að lögin hafi að nokkru leyti runnið sitt skeið á enda og það hefur þótt kominn tími á heildarendurskoðun löggjafarinnar. Slík endurskoðun fór fram á árunum 2019–2020. Á grundvelli þeirrar endurskoðunar var samið frumvarp til laga um mannanöfn í dómsmálaráðuneytinu sem var lagt fram á 151. löggjafarþingi.
Með frumvarpinu var gert ráð fyrir því að sett yrðu ný lög um mannanöfn og að samhliða myndu núgildandi lög um sama efni, nr. 45/1996, falla úr gildi. Markmiðið með frumvarpinu var einkum að einfalda reglur um mannanöfn og afnema þær takmarkanir sem eru í dag á skráningu nafna, bæði eiginnafna og kenninafna, og auka heimildir til nafnbreytinga. Með því er reynt að tryggja sem best rétt fólks til að ráða sjálft nöfnum sínum og barna sinna. Er þannig leitast við að aðlaga lögin betur að ríkjandi viðhorfum og aðstæðum í þjóðfélaginu í dag. Einnig var markmið frumvarpsins að jafna rétt manna til notkunar nafna en sumir telja núgildandi lög fela í sér ákveðna mismunun á rétti til nafns, einkum þegar kemur að upptöku ættarnafna. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi haustið 2020 en var ekki afgreitt á þinginu.
Það verður að segjast hér að dómsmálaráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um hvort frumvarp til laga um mannanöfn sem lagt var fram á 151. löggjafarþingi verði endurflutt. Ráðherra telur tímabært að taka til skoðunar ákveðna þætti laganna en ekki hefur verið ákveðið hvort eða hvenær sú vinna geti farið fram. Það skal áréttað hér að ekki hefur farið fram frekari vinna við frumvarpið í ráðuneytinu að svo komnu máli frá því að það var lagt síðast fram á 151. löggjafarþingi.