eftirlit með vistráðningum.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir spurninguna. Í frumvarpi þáverandi dómsmálaráðherra um breytingu á lögum um útlendinga, er varða dvalarleyfi og varð að lögum nr. 56/2023 sem öðluðust gildi 7. júlí síðastliðinn, var m.a. mælt fyrir um aukið eftirlit með vistráðningum. Umrætt ákvæði frumvarpsins var svohljóðandi:
„Útlendingastofnun er heimilt að fela sérstökum eftirlitsaðila að hafa eftirlit með vistráðningum, þ.m.t. að taka út aðstæður á heimili vistfjölskyldu, svo sem með óboðuðu eftirliti, taka viðtöl við hinn vistráðna og vistfjölskyldu og sjá til þess að vistráðningarsamningur sé virtur í hvívetna, m.a. um hámarksvinnuframlag. Útlendingastofnun ber ábyrgð á að fylgja eftir ábendingum eftirlitsaðila um brot á vistráðningarsamningi.“
Í mati á áhrifum frumvarpsins varðandi þessa breytingu sem unnið var fyrir framlagningu þess var eftirfarandi tekið fram:
„Í frumvarpinu er mælt fyrir um heimild Útlendingastofnunar til að fela sérstökum eftirlitsaðila að hafa eftirlit með vistráðningum. Áréttað er að þessi heimild breytir ekki fyrirkomulagi gildandi laga um að lögregla skuli að beiðni Útlendingastofnunar fari á heimili hins vistráðna og kanna aðstæður hans. Umrædd breyting veitir eingöngu lagaheimild til handa Útlendingastofnun enda felst í því ekki skylda um að bæta eftirlit með vistráðningum. Verði slíkt eftirlit að veruleika þyrfti eðli málsins samkvæmt að kostnaðarmeta það og vinna í tengslum við gerð fjárlaga.“
Í meðförum frumvarpsins hjá allsherjar- og menntamálanefnd var ákvæðinu breytt á þann veg að Útlendingastofnun væri skylt en ekki einungis heimilt að fela sérstökum eftirlitsaðila að hafa eftirlit með vistráðningum. Var breytingin útskýrð í nefndaráliti allsherjar- og menntamálanefndar með eftirfarandi rökum:
„Nefndin telur mikilvægt að Útlendingastofnun verði skylt að fela sérstökum eftirlitsaðila að hafa eftirlit með vistráðningum í stað þess að vera það heimilt eins og lagt er til í frumvarpinu. Þá telur nefndin einnig mikilvægt að samhliða eftirlitinu verði hugað að fræðslu fyrir vistfjölskyldur og vistráðna um réttindi og skyldur. Nefndin telur einnig nauðsynlegt að ráðuneytið hugi að því hvort útfæra þurfi frekari heimild til gjaldtöku vegna leyfa til vistráðningar þannig að unnt verði að mæta kostnaði vegna eftirlitsins.“
Framangreindri breytingu allsherjar- og menntamálanefndar fylgdi ekki sérstök fjármögnun. Frá því að lög nr. 56/2023 voru samþykkt hefur ráðuneytið því unnið að því að útfæra hvernig fjármagna skuli eftirlitið, svo sem hvort umsóknargjald fyrir dvalarleyfi vegna vistráðningar muni standa að hluta eða öllu leyti undir eftirlitinu. Eigi umsóknargjaldið að standa að öllu leyti undir eftirlitinu er ljóst að hækka þarf það gjald umtalsvert en það er í dag 16.000 kr. Slíkt krefst annars vegar greiningar á umfangi og kostnaði að undangengnum samningaviðræðum við mögulega eftirlitsaðila og hins vegar breytingu á lögum um aukatekjur ríkissjóðs, nr. 88/1991, sem er á forræði fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Þá þarf að meta hvort slík þjónusta sé útboðsskyld.
Vinna er hafin innan dómsmálaráðuneytisins varðandi heildargjaldtökubreytingar vegna umsókna um dvalarleyfi og er m.a. til skoðunar hvort skynsamlegt sé að breyta gjöldunum í þjónustugjöld í stað tilgreinds gjalds í lögum um aukatekjur ríkissjóðs sem er skattur og fer ekki beint í rekstur leyfasviðs Útlendingastofnunar. Þangað til þeirri vinnu lýkur er framkvæmd sérstaks eftirlits með vistráðningum ekki fjármagnað og því verður ekki ráðist í slíkt á þessari stundu. Í því samhengi bendir ráðuneytið á að Útlendingastofnun hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að standa undir þeim kostnaði sem mun hljótast af eftirlitinu heldur verður að koma til sérstakt gjald til að fjármagna eftirlitið.
Ráðherra telur vert að nefna að þrátt fyrir stöðuna þá hefur ráðherra fullan hug á að leysa farsællega úr þessu máli og er með það til skoðunar í ráðuneytinu.