154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

eftirlit með vistráðningum.

504. mál
[18:42]
Horfa

Flm. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið sem sannarlega eru þó mikil vonbrigði þar sem, ef ég skil hæstv. ráðherra rétt, þá er ekkert eftirlit í samræmi við lögin. Mig langar til að byrja á að vekja athygli á því að það er skylda en ekki heimild til þess að viðhafa þetta eftirlit samkvæmt lögunum og var ákvæðinu breytt með þeim hætti í meðförum þingsins. Þrátt fyrir þetta þá hefði ég gjarnan viljað fá svör við spurningum 3 og 4 sem ég lagði fyrir hæstv. ráðherra sem eru óháðar því hvort eftirlitið sé fjármagnað eða ekki, sem það virðist ekki vera.

3. Hversu margar ábendingar hafa Útlendingastofnun borist á síðustu fimm árum um hugsanleg brot á vistráðningarsamningi og hvernig hefur stofnunin brugðist við slíkum ábendingum?

4. Hverjar eru mögulegar afleiðingar þess að ekki sé bætt úr vanefndum eða öðrum annmörkum af hálfu vistfjölskyldu í kjölfar eftirlits?

Þessum spurningum er ósvarað og ég leyfi mér að ítreka þær hér og vonast til þess að hæstv. ráðherra hafi svör við þeim.