154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

eftirlit með vistráðningum.

504. mál
[18:44]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ráðherra gafst ekki tími til að svara öllum spurningunum í fyrra svari og hyggst ráðherra svara þeim nú. Hv. þingmaður kallaði eftir svari við spurningum 3 og 4. Varðandi það hversu margar ábendingar hefðu borist þá er slíkar upplýsingar ekki unnt að kalla fram úr málakerfi Útlendingastofnunar, því miður. Að mati sérfræðinga stofnunarinnar berast slíkar ábendingar u.þ.b. annan hvern mánuð. Ef grunur er um mansal sendir Útlendingastofnun tilkynningu á lögregluna og óskar eftir að hún skoði málið nánar, t.d. með óboðaðri heimsókn á heimili. Í þeim tilfellum þegar hinn vistráðni hefur sjálfur samband við Útlendingastofnun er honum bent á úrræði líkt og Bjarkarhlíð ásamt því að málið er tilkynnt til lögreglu. Ef ábendingin snýr eingöngu að aðbúnaði hins vistráðna hefur Útlendingastofnun sent beiðni á lögreglu um að skoða þær aðstæður. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni koma slíkar ábendingar þó oft eftir að hinn vistráðni hefur skipt um vistfjölskyldu eða þegar hann er farinn af landi brott.

Hv. þingmaður spurði einnig hverjar séu mögulegar afleiðingar þess að ekki sé bætt úr vanefndum eða öðru. Ráðherra verður að upplýsa um það að slíkt hefur ekki verið útfært á þessari stundu, samanber svar við fyrri spurningum.