fjöldi lögreglumanna.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. Ég hjó eftir því að hæstv. ráðherra talaði talsvert um að mikið hefði verið brugðist við. Staðreyndin er hins vegar sú að þessi þróun er búin að vera hangandi yfir okkur ansi lengi. Þetta þýðir að öryggi lögreglumanna á vettvangi, sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu, er minna en það á að vera og þetta þýðir auðvitað líka að öryggi borgaranna er minna heldur en það á að vera. Það er síðan áhugavert undir sama málefnahatti þessa ráðuneytis eru útlendingamálin og þar hafa flokksmenn Sjálfstæðisflokksins talaði um að ríki stjórnleysi. Mér finnst að hæstv. ráðherra megi alveg bregðast við því að þegar flokkur hefur verið með tiltekið ráðuneyti svona lengi en ástandið í málaflokknum er eiginlega alveg hið sama hvar sem við berum niður, við getum bætt fangelsismálunum hér við, og er í þeim ólestri sem verið er að lýsa, af hverju ætti það að vera trúverðugt þegar menn ætla allt í einu að blása í herlúðra með litlum fyrirvara?