154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

fjöldi lögreglumanna.

460. mál
[19:02]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka þeim öllum sem hafa beint spurningum til ráðherra hér og nú. Ég vil ítreka það að á síðasta ári veitti dómsmálaráðherra aukna fjármuni til að efla viðbragð lögreglu og löggæslustofnana, sérstaklega þegar kemur að aðgerðum er varða skipulagða brotastarfsemi þar sem sérstök áhersla var lögð á alþjóðlegt samstarf og einnig var bætt við stöðugildum í rannsókn og saksókn kynferðisbrota hjá lögreglu og með því tókst að vinna töluvert niður uppsafnaðan málafjölda hjá lögreglunni með fjölgun starfsmanna og breyttum vinnubrögðum. Ráðherra mun halda áfram vinnu við þessar aðgerðir og ásamt ríkissaksóknara, ríkislögreglustjóra, héraðssaksóknara og lögreglustjóra landsins halda áfram að efla lykilþætti íslenskrar löggæslu, t.d. með enn frekari fjölgun lögreglumanna en einnig með fjölgun nemenda í námi í lögreglufræðum. Núna hafa 80 nemendur verið teknir inn á ári hverju en áður voru þeir á bilinu 40–45. Þessi tímabundna tvöföldun í námi lögreglumanna er ein mikilvægasta aðgerð sem við höfum farið í.

Hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir kallar eftir svari varðandi rafvopn og kostnað vegna rafvopna versus að fjölga í lögreglunni. Ég hef þann kostnað ekki á reiðum höndum en kaup á rafvopnum er einskiptisaðgerð. Ég ætla að minna á það að lögreglan hefur í mörg ár kallað eftir því að fá fleiri verkfæri til valdbeitingar í sínum störfum. Hér hefur veruleiki lögreglumanna, sá veruleiki sem þeir starfa í, gjörbreyst, hann hefur harðnað (Forseti hringir.) og þeir verða að vera vel tækjum búnir og lögreglan hefur sjálf kallað eftir því.