154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

lokun fangelsisins á Akureyri og fangelsismál.

530. mál
[19:05]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Logi Einarsson) (Sf):

Frú forseti. Það hefur varla farið fram hjá almenningi og alls ekki ráðherra að umboðsmaður Alþingis hefur gert verulegar athugasemdir við aðbúnað fanga hérlendis. Fangelsin hafa sætt niðurskurði samfellt í 21 ár og við sjáum ekki fram á að nýtt fangelsi rísi fyrr en í fyrsta lagi eftir fimm ár. Þess vegna spyr maður sig hvort sú ákvörðun að leggja niður fangelsið á Akureyri hafi í rauninni verið skynsamleg. Fangelsið var til fyrirmyndar og starfsfólk hafði á sér sérstaklega gott orð og þetta hefur formaður félags fanga margítrekað. Þótt ákvörðunin hafi fyrst og fremst verið rekstrarlegs eðlis þá dreg ég í efa að sparnaður hafi verið nokkur þegar upp er staðið. Hann jók einfaldlega kostnað annars staðar í kerfinu. Samlegðaráhrif fangelsisins og lögregluembættisins eru nefnilega augljós. Lokunin var líka mjög neikvæð með tilliti til mannúðarsjónarmiða. Fangar geta nú ekki afplánað nærri heimabyggð og börn og makar eiga erfitt með að heimsækja ástvin sem afplánar. Þá hefur lokunin leitt til brota á mannúðarreglum.

Við skulum taka eitt raunverulegt dæmi. Einstaklingur er handtekinn á Akureyri og síminn tekinn af honum í rannsóknarskyni. Hann er í höndum lögreglu of lengi samkvæmt mannréttindareglum þar sem engir fangaverðir eru á Akureyri eftir að fangelsinu var lokað. Hann er loks fluttur suður með ærinni fyrirhöfn og tilkostnaði og settur í gæsluvarðhald á Hólmsheiði. Rannsókn leiðir í ljós, örfáum klukkustundum síðar, að ekki er tilefni til að halda honum lengur og honum er hleypt út fyrir fangelsishliðið. Þar stendur hann símalaus og er sjálfum gert að koma sér aftur heim. Hann þarf að borga fyrir leigubíl á flugvöllinn og kaupa flugferð norður í land en algengt verð er um 35.000 kr. Spurningin er hvað ráðherra finnst um þetta. Telur hann að mannréttindi fólks séu virt í slíku tilfelli og telur hann þetta samrýmast markmiðum stjórnvalda um jöfn búsetuskilyrði?

En að lokum, herra forseti: Nú hefur hæstv. dómsmálaráðherra tilkynnt um byggingu nýs fangelsis í stað Litla-Hrauns á sama stað. Því verða tvö stór fangelsi í landinu mjög nálægt hvort öðru. Það verður ekkert fangelsi á landsbyggðinni. Þótt eflaust sé hægt að sýna fram á rekstrarlegt hagræði í því að reka einungis tvö stór fangelsi á stórhöfuðborgarsvæðinu eru raunverulegir útreikningar miklu flóknari en svo að hægt sé að taka þá úr hinu stærra samhengi sem er að hinn raunverulegi hagnaður samfélagsins veltur á því að fangar komi út í samfélagið aftur sem betri og löghlýðnari þjóðfélagsþegnar. Ég held einfaldlega að dæmin sanni að lítil og manneskjuleg úrræði eins og fangelsið á Akureyri séu vanmetin.

Því spyr ég hæstv. ráðherra að lokum, í ljósi þeirra dæma sem ég hef rakið og vegna þess hversu vel fangelsið á Akureyri var þó þokkað: Kemur til greina að opna það aftur?