lokun fangelsisins á Akureyri og fangelsismál.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrir spurninguna. Telur ráðherra að lokun fangelsisins á Akureyri árið 2020 hafi verið farsæl ákvörðun? Fangelsið á Akureyri var minnsta rekstrareining Fangelsismálastofnunar og voru vistaðir um átta til tíu fangar þar að jafnaði. Var talið að með því að loka því fangelsi yrði hægt að nýta fjármuni betur en kostnaður við hvert fangapláss á Hólmsheiði og Litla-Hrauni var mun lægri en hann var á Akureyri.
Í dómsmálaráðuneytinu er nú unnið að stefnumótun hvað varðar fullnustukerfið í heild sinni þar sem stendur til að fara yfir húsnæðismál fangelsanna og greina stöðuna, m.a. hvað varðar húsnæði og aðbúnað fanga. Fangelsi eru mjög sértæk úrræði, sérstaklega lokuð fangelsi, og krefjast slík úrræði aðkomu margra sérfræðinga á ýmsum sviðum, svo sem geðlækna, menntamálayfirvalda, barnaverndaryfirvalda, dómstóla og lögmanna. Þessi þjónusta er að miklu leyti til staðsett á höfuðborgarsvæðinu og er meðal þess sem þarf að taka tillit til þegar ákvörðun er tekin um hvar fangelsi eigi að vera staðsett. Eins og fyrr segir verður farið heildstætt yfir húsnæðismál fangelsanna í vetur en almennt þykir ekki hagkvæmt út frá rekstrarlegum forsendum að reka litlar einingar. Einnig hefur reyndin verið sú að auðveldara er að halda uppi betri þjónustu við fanga í stærri einingum en eins og fyrr segir er öll sérþjónusta sem föngum er mikilvæg að miklu leyti á höfuðborgarsvæðinu.
Ekki eru fyrirliggjandi upplýsingar um árlegan kostnað ríkissjóðs af því að flytja gæsluvarðhaldsfanga frá heimabyggð í gæsluvarðhaldsfangelsi á Hólmsheiði og Litla-Hrauni, en sá kostnaður er, að ég tel, nokkuð mikill.
Einnig er spurt hvernig aðstoð sé háttað við einstaklinga sem látnir eru lausir úr gæsluvarðhaldsfangelsi en búsettir eru fjarri fangelsinu og hvort fangelsismálayfirvöld greiði þann ferðakostnað þessara einstaklinga. Fangelsismálayfirvöld greiða ekki ferðakostnað og í flestum tilfellum leita fangar á leið úr afplánun til ættingja og vina. Annars aðstoða fangelsismálayfirvöld einstaklinga t.d. með þeim hætti að aka þeim þangað sem þeir geta komist í almenningssamgöngur.
Einnig var spurt hvort börn fanga sem búsett er í öðrum landshluta en þar sem fangar eru vistaðir hljóti fjárhagsstyrk til að heimsækja foreldra sína í fangelsi og hvort tíðni heimsókna fyrrgreindra barna hafi verið skoðuð og gerður samanburður við tíðni heimsókna barna sem búsett eru á Suðurlandi eða suðvesturhorni landsins. Um 10–25% allra fanga óska að jafnaði eftir því að fá börn sín í heimsóknir. Þegar börn eða aðrir heimsóknargestir koma um langan veg reyna fangelsin að taka tillit til þess og leyfa tíðari heimsóknir auk þess sem reynt er að hafa heimsóknir lengri. Þá má einnig geta þess að á Hólmsheiði er fjölskylduíbúð þegar fangar og fjölskyldur þeirra þurfa lengri tíma í heimsóknum sínum.
Hv. fyrirspyrjandi spurði hvort til stæði að opna fangelsið á Akureyri aftur. Ég vil taka það fram og taka undir orð hv. þingmanns að starfsfólk í fangelsinu á Akureyri hafði mjög gott orð á sér og var vel látið af þeirri starfsemi. Hins vegar hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um það að opna aftur fangelsi norðan heiða eða einhvers staðar annars staðar úti á landsbyggðinni.