154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

lokun fangelsisins á Akureyri og fangelsismál.

530. mál
[19:14]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Logi Einarsson) (Sf):

Frú forseti. Til upplýsingar vegna spurningar hv. þm. Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur um kostnað við að flytja fanga í gæsluvarðhald þá spurði ég um þetta í skriflegri fyrirspurn til ráðherra og ég fékk svar og það var vísvitandi ekki allt tekið til sem augljóslega fellur til; matur, gisting og annað. Hæstv. ráðherra: Ef allt miðast út frá því að skoða hvað er til staðar á höfuðborgarsvæðinu þá endum við með því að allt verður hér á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er ekki bara spurning um krónur og aura. Þetta er spurning um mannúð líka, fyrir utan að það verður að skoða kostnaðinn í stærra samhengi. Hvað kostar það að betra ekki fanga og senda hann út í samfélagið án þess að hann hafi nokkra möguleika á því að takast á við tilveruna sem löghlýðinn borgari? Það er ekki nóg að það felist umtalsverður kostnaður í því að ferðast langar leiðir fyrir ástvini til að heimsækja fanga sem er staddur hér í Reykjavík, jafnvel þó að það sé húsnæði í boði. Það er matur, það er vinnutap og annað.

Þess vegna ætla ég að ljúka þessu á því, frú forseti, að spyrja og ítreka og heimta í rauninni svar við einni spurningu sem hæstv. ráðherra vék sér algerlega undan að svara: Hvernig samræmist þessi tilhögun markmiðum stjórnvalda um jöfn búsetuskilyrði?