154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

hættumat vegna ofanflóða.

343. mál
[19:26]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Já, hættumat er svo sannarlega í huga okkar í dag. Við höfum talað hér fyrr í dag um hættumat vegna eldgosa og jarðhræringa og nú erum við að tala um hættumat vegna ofanflóða. Við búum í landi þar sem náttúruöflin sýna okkur reglulega hver fer með völdin og við þurfum að leggja mikla vinnu í það að fara að meta hættur mun betur en við höfum verið að gera hingað til, ekki bara ofanflóð, ekki bara eldgos, heldur allar þær hættur sem felast í náttúrunni. Við þurfum að setja fjármagn í þetta vegna þess að ef við vitum ekki um hætturnar koma þær aftan að okkur. Og þegar við erum búin að gera þessi hættumöt þurfum við að leggja í vinnu við að gera viðbragðsáætlanir til að minnka þá áhættu sem þessu fylgir. Þetta er e.t.v. eitt af mikilvægari verkefnum ríkisstjórnarinnar á komandi mánuðum.