154. löggjafarþing — 65. fundur,  5. feb. 2024.

innviðir við Jökulsárlón.

418. mál
[19:32]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Andrés Ingi Jónsson) (P):

Frú forseti. Það þarf varla að fjölyrða um þau ótal mörgu jákvæðu áhrif sem hafa orðið af stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs, bæði hvað varðar náttúruvernd en ekki síður eflingu brothættra byggða á jaðri garðsins. Það hefur hreinlega orðið viðsnúningur í byggðaþróun, t.d. í Höfn í Hornafirði sem mig langar að ræða hér í dag. En sú þróun er í rauninni nýbyrjuð og ekki til lykta leidd, við erum í miðri á. Við þurfum að nýta þjóðgarðinn til góðs til að stýra henni í rétta átt þannig að þarna verði byggt upp öflugt samfélag til lengri tíma.

Annað sem er svo skemmtilegt við þjóðgarðinn er hversu opið ákvarðanatökuferlið er. Svæðisráð hafa mikla aðkomu og í gegnum þau hafa heimamenn mikið um það að segja hvernig garðurinn þróast. Þess vegna kom það nokkuð flatt upp á fólk þegar í ágúst síðastliðnum fjármála- og efnahagsráðuneytið, ásamt umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti, auglýsti eftir áhugasömum aðilum um uppbyggingu á rekstri innviða við Jökulsárlón. Augljóslega þarf að byggja þar upp. Þetta er landspilda sem kom frekar nýlega inn í þjóðgarðinn og var áður í einkaeign og þarna þarf mikið að gera til þess að hægt sé að taka á móti þeim gríðarlega fjölda ferðamanna sem farinn er að sækja lónið heim. En svo virðist sem þessi auglýsing hafi ekki verið unnin í samráði við Sveitarfélagið Hornafjörð eða þjóðgarðinn sjálfan.

Þess vegna langar mig að spyrja ráðherrann: Hver var aðdragandinn að þessari auglýsingu og hvaða samráð átti sér stað?

Það sem mig langar ekki síður og kannski jafnvel enn þá frekar að heyra frá ráðherranum er hvernig verði séð til þess að við val á rekstraraðila, þeim mögulega enda sem verður af þessu ferli, að þar verði stutt við markmið Vatnajökulsþjóðgarðs um að efla heimabyggð.

Hér vil ég nefna að í lok september, rúmum mánuði eftir að auglýst var eftir áhugasömum aðilum, boðaði Ferðamálafélag Austur-Skaftafellssýslu til félagsfundar þar sem kannaður var áhugi á því að stofna fasteignafélag heimafólks til að sjá um þennan rekstur. Þar komu saman ótal ólíkir aðilar sem eru grasrótin í ferðaþjónustu á þessu svæði og það vakti svo mikla lukku að fyrir árslok voru komin hlutafjárloforð upp á 2 milljarða kr. til að sinna þessu verkefni. (Forseti hringir.) Mig langar að heyra frá ráðherranum hvernig byggðasjónarmið munu vega inn í þetta ferli vegna þess að það er ekki bara hægt að horfa á hagvöxt eða ágóða, ábata einstakra rekstraraðila, (Forseti hringir.) það verður að vega inn í þetta hvernig skapað er gott samfélag í kringum Vatnajökulsþjóðgarð.