innviðir við Jökulsárlón.
Forseti. Jú, ég kannast við þá áherslu sem hefur komið fram í orðum og aðgerðum hæstv. ráðherra, að hann vilji auka umsvif þeirra stofnana sem undir hann heyra á landsbyggðinni, þó það nú væri, friðlýst svæði eru nú yfirleitt úti um landið þannig að umfangið ætti helst að vera þar. En vegna þess að hér var vísað í þá vinnu sem er í gangi hjá Deloitte, verið að vinna einhverjar sviðsmyndir og greiningar á stöðunni, þá situr samt eftir pólitíska spurningin. Ráðherra málaflokksins hefur væntanlega eitthvað um það að segja hvort verði látið vega þyngra í endanlegri ákvörðun, hámörkun gróða fárra einstaklinga sem eiga stór fyrirtæki sem geta gert tilboð á öðrum forsendum en þeir heimamenn sem ég nefndi hér eða uppbygging sem styðji við þá jákvæðu samfélagsþróun sem er komin af stað. Við þekkjum það nú í þessum litlu sveitarfélögum víðs vegar um landið að það munar um hvern einasta einstakling sem bætist við í hóp vinnandi fólks, það munar um hverja einustu fjölskyldu sem flyst á svæðið til að sinna auknum umsvifum í ferðaþjónustu. Ég leyfi mér að efast um það að eitt af stóru ferðaþjónustufyrirtækjunum sem gera út frá Reykjavík hefði jafn bein jákvæð áhrif á samfélagið á Höfn eins og ef um væri að ræða einingu rekna á samfélagslegum forsendum þeirra sem þar búa.
Mig langar bara að heyra frá ráðherranum hvernig hann sjái fyrir sér að vega þessi ólíku sjónarmið þegar kemur að því að meta tilboðin í útboðið.