Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Íbúar Grindavíkur hafa nýtt undanfarna daga til að sækja þá innanstokksmuni sem þeir hafa haft tækifæri til að sækja áður en til tíðinda dregur á nýjan leik sem allt útlit er fyrir að gerist innan skamms. Eðlilega hvílir staðan þungt á Grindvíkingum og þrátt fyrir að komið sé til móts við þá á ýmsan hátt er óvissan mikil. Verður hægt að flytja til Grindavíkur á nýjan leik? Munu Grindvíkingar geta gengið að húsinu sínu vísu í framhaldinu? Verða þessir atburðir viðvarandi? Munu fyrirtækin hverfa úr sveitarfélaginu, eitt af öðru? Ræður sveitarfélagið við að halda stjórnsýslunni gangandi? Á þessum tímapunkti er erfitt að veita svör við svona spurningum. Nú er hins vegar orðið ljóst að ekki verður um neina búsetu að ræða í Grindavík, a.m.k. ekki næstu misseri. Þótt sárt sé ætti það að eyða ákveðinni óvissu. Grindvíkingar bíða nú eftir svörum um uppkaup ríkisins og eftir atvikum fjármálastofnana á húsnæði í Grindavík. Það myndi veita Grindvíkingum tækifæri til að koma sér fyrir á nýjum stað og upplifa eitthvert öryggi. Þá vakna hins vegar nýjar spurningar sem vega þungt í huga heimamanna. Fyrsta spurningin sem maður heyrir er hvort miðað verði við fasteignamat eða brunabótamat þegar innlausn húsnæðis á sér stað. Vegna mikils munar á fasteignamati og brunabótamati er eðlilegt að spurt sé. Í mínum huga ætti alltaf að miða við brunabótamat sem endurspeglar betur raunverð húsnæðis. Þá veltir fólk líka fyrir sér forkaupsrétti þar sem mörg vilja halda í þá von að komast til baka þótt síðar verði, og ef af honum verður, hver muni sjá um viðhald húsa og lóða í millitíðinni. Því þarf einnig að svara en von Grindvíkinga er að upplifa einhverja festu og fyrirsjáanleika og þá von megum við ekki taka af þeim.