Störf þingsins.
Herra forseti. Enn eitt dauðsfallið. Fjölmiðlar greina frá því í dag að þann 16. janúar lést 18 ára gamall drengur úr ofneyslu í heimahúsi. Enn eitt lífið sem fíknisjúkdómurinn hrifsar af okkur sem samfélagi. Þetta er 18 ára gamall drengur og við getum rétt ímyndað okkur sorgina hjá aðstandendum, fjölskyldu og vinum. Við getum líka tekið eitt andartak til að hugsa um það hvort sorg fjölskyldunnar og vina eigi ekki að vera sorg okkar allra, hvort við eigum ekki að reyna að beina sjónum okkar að þeirri staðreynd að það eru 100 einstaklingar á hverju ári sem hljóta sömu örlög og ungi drengurinn sem fjölmiðlar greina frá í dag, 100 manns á ári hverju. Ég veit að það er ekkert alltaf snyrtilegt að bera saman ólíka hluti, en hvað myndum við gera sem samfélag ef 100 Íslendingar myndu deyja af völdum náttúruhamfara í einu vetfangi? Samfélagið myndi lamast af sorg, samkenndin myndi brjótast fram hjá okkur sem við þekkjum öll mætavel og þessi sorg og þessi samkennd myndi síðan finna sér farveg í vilja og verki til þess að koma í veg fyrir það að svona áföll dynji yfir aftur. Af hverju nær þessi hugsun okkar ekki yfir í þá staðreynd að við erum að missa 100 einstaklinga, margt ungt fólk, vegna þess að samfélagið er sinnulaust og sofandi þegar kemur að þessum alvarlegasta heilbrigðisvanda sem blasir við íslensku samfélagi og reyndar heimsbyggðinni allri? Ég ætlaði að tala um annað hér í dag en ég sá mig knúinn til að halda enn eina ræðuna um þennan vanda úr því að fjölmiðlar birtu þessa frétt í dag. Okkur þingmönnum gefst tækifæri til að ræða þennan málaflokk í dag því þá mæli ég fyrir máli þar sem stjórnvöldum er gert skylt að móta sér stefnu í þessum málaflokki til lengri tíma. Það hefur engin stefna verið í gildi þegar kemur að áfengisvörnum og vímuefnavörnum frá árinu 2020. Ég held að það sé orðið tímabært að sinnuleysið víki og að við vöknum.