154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

Störf þingsins.

[13:58]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Virðulegi forseti. Mig langar að gera hér að umtalsefni mál sem mér finnst furðu mikið sinnuleysi ríkja um; hversu hægt okkur miðar við endurheimt votlendis. Árið 1970 birti Halldór Laxness grein sem hét „Hernaðurinn gegn landinu“ þar sem hann staðhæfði að íslensk náttúra væri fjarri því að vera jafn óspillt og við höldum sjálf fram heldur væri Ísland, eins og hann segir, eina landið í Evrópu sem væri gerspillt af manna völdum. Eitt dæmi sem Halldór tekur í þessari frægu grein er um framræslu mýra. Halldór skrifar, með leyfi forseta:

„Á síðustu áratugum hafa menn verið verðlaunaðir af hinu opinbera fyrir að ræsa fram mýrar, lífseigustu gróðursvæði landsins, undir yfirskini túnræktar. Seigar rætur mýragróðursins halda gljúpum jarðveginum saman og vatnið nærir fjölda lífrænna efna í þessum jarðvegi og elur smádýralíf sem að sínu leyti dregur til sín fugla. Mýrarnar eru stundum kallaðar öndunarfæri landsins. Þúsundir hektara af mýrum standa nú með opnum skurðum sem ristir hafa verið í þeim tilgángi að draga úr landinu alt vatn; síðan ekki söguna meir: eftilvill var aldrei meiníngin í alvöru að gera úr þessu tún. Fer ekki að verða mál til að verðlauna menn fyrir að moka ofaní þetta aftur?“ — spurði Halldór Laxness.

Þessi hugmynd Halldórs var reynd fyrir nokkrum árum, enda er það óumdeilt hjá vísindamönnum á þessu sviði að endurheimt votlendis er langsamlega öflugasta einstaka aðgerð sem völ er á til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. En þá bregður svo einkennilega við að bakslag hefur orðið í þessari viðleitni og af einhverjum ástæðum þverskallast Íslendingar við að framfylgja áætlunum um (Forseti hringir.) endurheimt votlendis. Meira að segja skurðir á ríkisjörðum njóta sérstakrar friðunar (Forseti hringir.) og engu líkara en að Íslendingar líti á framræstar mýrar sem herfang (Forseti hringir.) í hernaðinum gegn landinu.

Mál er að linni, virðulegi forseti, (Forseti hringir.) líka er mál að ég hætti þessu tali, en ég vil ítreka að það er hér þörf (Forseti hringir.) á samtaka stórátaki, annars lenda loftslagsmarkmið Íslendinga úti í skurði.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir aftur á ræðutímann.)