154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

Störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Inger Erla Thomsen (Sf):

Hæstv. forseti. Palestínuflóttamannahjálpin UNRWA er líflína tveggja milljón manna sem hafa þurft að þola landrán og ofsóknir frá stofnun Ísraelsríkis 1948. Stofnun Palestínuhjálparinnar ári síðar var bein afleiðing þess. Undanfarna 122 daga hefur palestínska þjóðin upplifað verstu mannúðarkrísu okkar aldar. Án Palestínuhjálparinnar yrðu flestir íbúar landsins án matar, vatns, heilbrigðisþjónustu og annarrar grunnþjónustu í aðstæðum sem hefur verið lýst af embættismönnum stofnana Sameinuðu þjóðanna sem helvíti á jörðu. Palestínuhjálpin er stærsta stofnunin sem veitir mannúðaraðstoð í Palestínu og eru aðrar hjálparstofnanir háðar henni. Þannig eru störf þeirra einnig í hættu ef Palestínuhjálpin getur ekki sinnt hlutverki sínu og bætist þá ofþornun og næringarskortur við sprengingar og morð sem Palestínufólk býr við. Fjársvelti Palestínuhjálparinnar stuðlar þannig að þjóðarmorðinu á palestínsku þjóðinni. Þetta eru manneskjur, samborgarar okkar í alheimssamfélaginu.

Ísland hefur viðurkennt sjálfstæði Palestínu og ætti að standa með undirokuðum þjóðum sem berjast fyrir tilverurétti sínum. Josep Borrell, æðsti fulltrúi ESB í utanríkis- og öryggismálum, komst vel að orði í ræðu sinni, með leyfi forseta:

Erfitt er að ímynda sér eins óhófleg viðbrögð annars staðar. Ef læknir á evrópskum spítala yrði uppvís að saknæmu athæfi væri gerð ítarleg rannsókn og allar viðeigandi ráðstafanir gerðar en engin ríkisstjórn myndi nokkurn tíma hætta að fjármagna allt heilbrigðiskerfið. Misgjörð einstaklinga ætti aldrei að leiða til hóprefsingar heillar þjóðar.

Viljum við virkilega vera ríki sem tók virkan þátt í fjársvelti Palestínuhjálparinnar, (Forseti hringir.) líflínu milljóna manna? Viljum við virkilega að okkar sé minnst svona í alheimssögunni? Nei, ekki í mínu nafni. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)