Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mig langar við þetta tilefni að ræða stuttlega meðferð skattfjár og eftir atvikum virðingarleysi gagnvart skattpeningum. Síðastliðinn föstudag lýsti hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, því yfir í viðtali í Spursmálum Morgunblaðsins að kostnaðurinn við hælisleitendamál væri 16 milljarðar á yfirstandandi ári. Í dag birtust upplýsingar frá dómsmálaráðuneytinu þess efnis að talan stæði í 20 milljörðum. Hún hækkaði um 4 milljarða á fjórum dögum. Eflaust kunna þau skýringar á þessu en mér er til efs að nokkur maður þurfi að spyrja um þessa upphæð eftir viku héðan í frá ef takturinn er með þessum hætti. En það sem við verðum að hafa í huga er hvað tjónið er fljótt að verða. Við erum hér dagana langa að tosast á um 100 milljónir hér og 200 milljónir þar. Síðan verður þarna 4 milljarða matsaukning, væntanlega orðnar rauntölur miðað við hvaða tímabil er verið að skoða, á fjórum dögum og greinilegt að ráðherrarnir tala ekki saman. Í gær birtist síðan í Morgunblaðinu frétt af því að Fossvogsbrúin svokallaða, Alda, hefði farið úr 2,2 milljörðum í 8,8; fjórföldun, 6,6 milljarðar aukalega á sama tíma og við tosumst hér harkalega á um nokkrar milljónir hér og nokkrar milljónir þar. Það kom fram í fréttaflutningi af þessu máli að kostnaðurinn hefði bara ekki skipt neinu máli í mati á tillögunni. Það er greinilega nóg til.
Virðulegur forseti. Mér finnst nauðsynlegt að við þingmenn berum virðingu fyrir þeim fjármunum sem við tökum af heimilum og fyrirtækjum landsins. Þær fréttir sem berast nú um stundir af meðferð stjórnvalda á almannafé eru ekki boðlegar. Ríkisstjórnin verður að taka til í sínum ranni og fara að nálgast þá fjármuni sem teknir eru af heimilum landsins og fyrirtækjum af meiri virðingu.