Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Er einhver hér í þessum sal sem á barn eða barnabörn sem dreymir um að komast út í geim? Er einhver sem hefur átt sér þann draum? Ég átti hann. Fyrir íslensk börn dagsins í dag er þessi draumur ekki endilega út í bláinn, eins og hann var nú sennilega í tilfelli okkar sem hér sitjum. Í febrúar síðastliðnum lagði ég fram fyrirspurn til hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um stöðu umsóknar Íslands um aðild að Geimvísindastofnun Evrópu, ESA, en svar barst rétt fyrir páska í fyrra. Svarið olli mér nokkrum vonbrigðum en lítið hefur gerst í því máli síðan Alþingi ályktaði um, með leyfi forseta, „að fela utanríkisráðherra að sækja um aðild Íslands að Geimvísindastofnun Evrópu að undangenginni nánari skoðun á skuldbindingum samfara aðild.“
Þegar síðasta var spurt um þetta mál á þingi árið 2021 sagði utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, sem þá var talinn vera ráðherra málefna geimsins, eftirfarandi, með leyfi forseta:
„Hinn 11. júní 2019 lá fyrir samþykki á næsta skrefi í ferlinu, í samræmi við vegvísi stofnunarinnar, sem fólst í því að ráðherra málefna geimsins ritaði stofnuninni bréf þar sem leitast væri eftir að hefja viðræður um aðild.“
Og hvað hefur gerst síðan? Eiginlega ekkert.
Ég hef í rannsóknum mínum á geimgeiranum á Íslandi komist að því að íslensk stjórnvöld hafa ekki tekið þetta mál mjög alvarlega. Það er tilfinning þeirra sem starfa í þessum geira að fólk haldi að þetta sé einhver brandari. Það er synd því að þátttaka í geimvísindum í dag snýst ekki um að eiga geimskutlu eða lenda á tunglinu og planta fána. Þetta er einfaldlega netverk um hátækniþróun, hugbúnaðargerð og grunnrannsóknir. Geimvísindastofnun Evrópu er líka atvinnuþróunarverkefni að því leyti að þau aðildargjöld sem aðildarlöndin greiða til hennar koma nánast öll til baka, en stofnunin skuldbindur sig til að verja a.m.k. 95% þeirra í aðildarlandinu sjálfu í því að styðja við bakið á ýmiss konar verkefnum sem tengjast geimrannsóknum.
Að auki má nefna það, herra forseti, að ríkisborgarar aðildarríkjanna geta átt von um að láta þann draum að verða geimfarar rætast. Íslensk börn gætu þannig með raunhæfum hætti tekið stefnuna á að komst út í geim. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)