vopnalög.
Forseti. Ég vildi bara þakka nefndinni fyrir vel unnin störf og fyrir að taka tillit til þeirra athugasemda sem bárust við 2. umræðu. Það er vandmeðfarið að glíma við vopn og ég skil það en ég var líka með ábendingar við 2. umræðu um bogfimi, sem er í smávanda út af íþróttaiðkun ungmenna. Í rauninni geta ungmenni ekki stundað keppni í bogfimi á Íslandi á sama hátt og t.d. á Norðurlöndunum. Ef við ætlum að halda bogfimikeppni hérna og hafa ungmennaflokk, kannski alþjóðlega keppni þar sem krakkar koma frá öðrum löndum að keppa, þá geta þau ekki notað bogana sem þau eru vön að nota því að það eru takmörkuð þyngdarviðmið í lögunum. Það er svo sem að einhverju leyti skiljanlegt en bogfimiíþróttinni hefur vaxið ásmegin á fáum árum á Íslandi. Ég sakna þess því kannski aðeins í þessu en ég skil alveg að það sé erfitt að bæta við öðrum atriðum í meðförum þingsins og ég legg þá í púkkið að við heildarendurskoðun vopnalaganna verði þetta líka skoðað þar.