154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

vopnalög.

349. mál
[14:19]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf):

Virðulegur forseti. Ég náði að taka þátt í hluta þessarar umræðu í nefndinni fyrr í vetur og var ákaflega áhugavert að hlusta á þá gesti sem komu fyrir nefndina á þeim tíma og lýstu stöðunni eins og hún er í dag í þessum efnum. Eins og þau sem hér eru inni vita kannski er Ísland meðal þeirra ríkja þar sem vopnaeign er hvað mest á mann í heiminum og ég held að við séum í öðru sæti í Evrópu á eftir Finnum. Hér eru um 80.000 skotvopn skráð. Langflest þeirra eru auðvitað venjuleg veiðivopn eða vopn sem notuð eru í veiðum eða til íþróttaiðkunar. Engu að síður eru þó ákveðnir einstaklingar sem eiga tugi vopna, jafnvel sjálfvirkra eða hálfsjálfvirkra, og það er vissulega áhyggjuefni sem frumvarp þetta tekur í sjálfu sér ekki á.

Mig langar að vekja athygli á ákveðinni klausu sem er í greinargerð með þessu frumvarpi en komið hefur fram að talsverð aukning hefur verið á innflutningi þessara svokölluðu safnvopna, sem hér er verið að taka á. Það voru um 20 einstaklingar sem áttu 161 þessara hálfsjálfvirku eða sjálfvirku skotvopna. Við erum að sjá að ákveðnir einstaklingar eru bara með vopnabúr á heimili sínu með hálfsjálfvirkum eða sjálfvirkum skotvopnum. Það er auðvitað áhyggjuefni sem þingheimur þarf að hafa í huga, ekki síst í ljósi þess að við erum farin að sjá aukinn vopnaburð meðal ungmenna og í undirheimum þessa lands og vekur það ugg til framtíðar.

Mig langaði bara að koma hingað upp og vekja athygli á þessu tiltekna máli. Ég tel að þetta frumvarp sé til bóta og að þarna sé tekið á ákveðnum þáttum sem þurfti að taka á.