mannanöfn.
Virðulegi forseti. Íslensk mannanafnalög snúast um það að verja íslenska tungu og verja íslenska nafnahefð. Þessi íslenska nafnahefð er meðal annars sú að við kennum okkur við föðurnafn eða móðurnafn. Þetta er alveg einstakt í heiminum. Það var þannig á miðöldum á Norðurlöndum að menn gerðu þetta líka en svo tóku menn upp ættarnöfn. Þetta miðar að því að verja þetta tvennt, verja þetta einstaka kenninafnakerfi, kenna við föður og móður, ég heiti ekki kenninafni mínu, og þetta snýst líka um það að skylt sé að gefa barni nafn innan sex mánaða frá fæðingu. Til hvers er það? Það segir í 2. mgr. 2. gr.: „Barn öðlast nafn með skráningu nafngjafar hjá Þjóðskrá Íslands.“ Barnið getur síðan heitið hvað sem er. Það er frægt mál t.d. frá Bandaríkjunum þegar tónlistarmaðurinn Prince tók upp tákn. Hann vildi heita þetta tákn, ég man ekki hvað það var, en skráningin á honum í bandarísku nafnaskránni, í þjóðskránni, var allt önnur. Það var hans nafn. Það geta allir tekið upp sín nöfn og kallað sig eitthvað en gagnvart stjórnvöldum snýst þetta um að það er skylt að gefa nafn svo að hægt sé að skrá það. Þá segja íslensk stjórnvöld: Það á að vera í samræmi við íslensku, íslenskt tungumál, íslenska málfræði og íslenska nafnahefð. Það er það sem mannanafnalögin ganga út á, þessa skráningu. Ef einhver vill láta kalla sig eitthvað annað þá gerir hann það bara.
Ég er ekki alveg búinn að kaupa það enn þá, hv. þingmaður getur kannski hjálpað mér að skilja það, hvernig íslensk nafnahefð og íslenskt málkerfi er varið með neikvæðum íþyngjandi formerkjum í núgildandi lögum. Ég get ekki séð að það sé íþyngjandi að íslensk stjórnvöld séu að verja íslenska tungu, þessa nafnahefð þar sem við kennum okkur við föðurnafn og móðurnafn og svo ættarnöfnin sem hafa orðið til fyrr á tímum. Það væri gaman að heyra álit hv. þingmanns á þessu. Hvernig getur það verið með íþyngjandi formerkjum að verja íslenska tungu?