154. löggjafarþing — 66. fundur,  6. feb. 2024.

mannanöfn.

22. mál
[15:30]
Horfa

Flm. (Guðbrandur Einarsson) (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég heyri það að við hv. þingmaður deilum ekki sömu skoðun á þessu, það liggur bara fyrir. Ég álít að það sé ekkert endilega hlutverk foreldra að verja íslenska tungu. Ég sé það ekki sem mikla vörn fyrir íslenska tungu, ef ég miða við þau dæmi sem ég nefndi hér áðan, um hvaða nöfn er búið að samþykkja og hvaða nöfnum er búið að hafna — að þar sé verið að verja íslenska tungu eitthvað sérstaklega. Mig langar að vitna í einn frægan speking sem heitir Eiríkur Rögnvaldsson. Hann segir:

„En hefðir eru lítils virði nema samfélagið þar sem þær gilda hafi áhuga á að halda í þær. Hefð sem þarf að viðhalda með lögum er ekki hefð — heldur nauðung. Hér vegur þó þyngst að núgildandi lög standast ekki með nokkru móti jafnræðiskröfur samtímans — og eru raunar að því er best verður séð brot á 65. gr. stjórnarskrárinnar þar sem segir m.a. að allir skuli vera jafnir fyrir lögum …“

Þannig er það í dag, það eru ekki allir jafnir fyrir lögunum. Sumir fá að viðhalda t.d. ættarnafni en aðrir fá ekki að taka upp ættarnafn. Í þessu frumvarpi eins og það liggur fyrir núna er fólgið frelsi foreldra til að ákveða nöfn barnanna sinna sjálf en ekki einhver nefnd úti í bæ sem er að velta fyrir sér einhverjum allt öðrum hlutum en eru í hugum foreldra. Enda sjáum við að það er fullt af foreldrum sem eru með alls konar falleg nöfn sem þeir vilja gefa börnunum sínum en fá það ekki af því að íhaldssemi einhverrar nefndar úti í bæ er að stjórna ferðinni.