mannanöfn.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka kærlega fyrir þessa fínu umræðu. Hún kemur á dálítið skemmtilegum tíma vegna þess að ég var einmitt í gær með fyrirspurn til hæstv. dómsmálaráðherra um svipað mál, þ.e. frumvarp sem hæstv. forveri hans lagði fram árið 2020 og var í efnisatriðum náskylt því frumvarpi sem hér er verið að tala um og miðaði að þeim breytingum sem hér er stefnt að líka en sofnaði í hinni ágætu allsherjarnefnd og hefur ekki verið vakið til lífsins aftur. Það var hins vegar gleðilegt, og er gaman frá að segja, að hæstv. dómsmálaráðherra var ákaflega jákvæður fyrir þessu máli, tók því vel og áttaði sig á því hversu mikið einstaklingsfrelsismál þetta er. Þetta er auðvitað mál sem snertir okkur sem einstaklinga fyrst og fremst, því að nafnið okkar er sennilega eitthvað það nánasta sem maður á að einhverju leyti, það persónulegasta. Og hið persónulega er pólitískt, ekki satt? Það er setning sem oft er notuð.
Ég hafði gaman af umræðunni hér áðan og skylmingunum sem fóru fram milli hv. fyrirspyrjanda og hv. flutningsmanns þessarar tillögu um íslenska tungu og íslenska mannanafnahefð. Nú er svo komið að orðið hafa mjög miklar breytingar á íslensku samfélagi síðan árið 1996 þegar mannanafnalögum var síðast breytt og þeim komið í það horf sem þau eru núna, sem er að mínu mati ákaflega takmarkandi og tek ég undir það hjá hv. flutningsmanni að svo sannarlega er ástæða til að skoða þessi lög í því ljósi. Nú eru 20% þjóðarinnar ekki innan þessarar íslensku mannanafnahefðar, það er einfaldlega þannig. Þá vil ég spyrja, herra forseti: Segjum að ég væri íslenskur ríkisborgari, stæði í þessum stól og talaði íslensku eins og ég geri, hefði alist upp hér, en héti Múhameð Sadiq. Væri ég þá að brjóta niður íslenska tungu? Eða ef ég héti Moon-Cheng Wang? Er ég þá í einhverjum ofsóknum gagnvart íslenskri tungu með því að heita þessum ágætu nöfnum, sem ég gæti bara vel heitið sem íslenskur ríkisborgari og Íslendingur á Alþingi Íslendinga?
Hv. flutningsmaður kom ágætlega inn á það hvort þessi tillaga myndi brjóta niður þá evrópsku alþýðuhefð að kenna sig til föður eða móður, sem við höfum varðveitt hér á Íslandi og gerðum lengi vel. Ég vil leiðrétta það í þessum ágæta stól að þetta er engin íslensk hefð. Þetta er bara miðaldahefð, alþýðuhefð, evrópsk og sjálfsagt evrasísk ef út í það er farið. Enn þann dag í dag kenna t.d. Rússar sig við föður og gera það aukreitis með sínu fjölskyldunafni. Við þekkjum mjög vel að það er oft notað í almennri umræðu þar. En það er rétt sem hér kom fram að á hinum Norðurlöndunum og víða í Evrópu kom fram sérstök löggjöf sem skyldaði fólk til að taka upp ættarnöfn. Það var sjálfsagt mestmegnis til að þjóna bjúrókrasíu þjóðríkjanna sem voru að verða til á þeim tíma, til að mynda í Hollandi. Þegar Napóleon lagði það ríki undir sig skyldaði hann Hollendinga til að kasta þessari föðurnafnahefð sem við höfum hér og taka upp ættarnöfn. Þeir voru nú ekki par hrifnir af því margir hverjir en þeir tóku upp alls konar fáránleg ættarnöfn sem enn þann dag eru við lýði í Hollandi og eru beinlínis fyndin, og áttu að vera það. Það var svona 18. aldar brandari.
Svo er það hitt málið, með mannanafnanefndina sem við erum með hérna á Íslandi. Hv. flutningsmaður kom mjög vel inn á það hversu tilviljanakenndar niðurstöður er oft að finna þar. Ýmislegt hlýtur ekki náð fyrir augum nefndarinnar sem maður eiginlega skilur ekki hvernig lenti í þeirri stöðu og annað er leyft, sem maður áttar sig ekki á. Þetta er eins og með handboltadómara, það verður að vera einhvers konar staðfesta í dómum. Það er ekki hægt að dæma eitt á annað liðið og annað á hitt liðið en manni finnst oft eins og það sé ekki alveg staðfesta í þessu. Sennilega væri langbest að losna við þetta vandamál og mér sýnist að þetta ágæta frumvarp hér taki á því.
Þetta bann við ættarnöfnum sem flutningsmaður, hv. þm. Guðbrandur Einarsson, kom ágætlega inn á áðan á uppruna sinn í lögunum 1925 þegar verið var að taka fyrir það að fólk gæti tekið upp ættarnöfn. Þá höfðu þó nokkrir, mestmegnis velmegandi einstaklingar, tekið upp ættarnöfn og passað var vandlega upp á það að þeir þyrftu ekki að afsala sér þeim og að niðjar þeirra gætu haldið þeim. Það sama var uppi á teningnum árið 1996 þegar lög þau sem nú gilda voru sett. Þar var verið að standa vörð um forréttindi ákveðinna aðila af efri millistétt og yfirstétt sem höfðu tekið sér ættarnöfn á ákveðnum tíma í sögu þjóðarinnar.
Eins og áður segir þá er þetta einstaklingsréttarmál. Það er líka réttur okkar sem einstaklinga að þurfa ekki að kenna okkur við foreldra okkar. Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því að fólk vill ekki kenna sig við foreldra sína, hvorki við föður né móður, en það er valið sem við stöndum frammi fyrir í dag, þ.e. við sem erum þvinguð til að taka þátt í því að vera safngripir á þjóðminjasafni evrópskrar miðaldanafnahefðar sem verið er að viðhalda á þessu landi með lögum. Það er bara réttur okkar að losna undan þessari undarlegu kvöð sem var sett í anda þjóðernishyggju og stéttaskiptingar. Því styð ég eindregið þetta frumvarp. Mér finnst það að mörgu leyti einfaldara en frumvarpið sem lagt var fram af hálfu hæstv. dómsmálaráðherra 2020, en inniheldur þó allan þann anda sem í því var að finna.
Ég hlakka til að sjá hver afdrif þessa máls verða í allsherjarnefnd. Ég vona að því verði fylgt fast eftir. Ég veit og ég heyrði í gær að hæstv. dómsmálaráðherra ætli að vera bandamaður í þessu máli, þó svo að hann sé ekki að leggja fram þetta frumvarp núna. Ég hvet því hv. flutningsmenn til að hafa það í huga, leita bandamanna þar sem þá er að finna og koma þessum nauðsynlegu umbótum á einstaklingsréttindum okkar hér á Íslandi í gegn.