mannanöfn.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til þess að fjalla um frumvarp um nafnagjöf á Íslandi og frelsi til að gefa börnum þau nöfn sem foreldrum býr í brjósti. Ég kem hér upp til að taka undir. Ég er sammála þeim breytingum sem hér eru settar fram. Vissulega eru þær í þinglegri meðferð, ég hef ekki alveg lesið þetta frá orði til orðs en sjálfsagt er hægt að sníða af einhverja agnúa í þessu, einhverjar hættur sem ég kem nú reyndar ekki auga á í fljótu bragði. Ég held að íslensk nafnahefð sé það rík í okkar hugum að íslenskum foreldrum og þeim sem fæða börn á Íslandi sé alveg treystandi til að gefa börnum sínum nafn sem þau koma til með að vilja bera sem fullorðnar manneskjur.
Eins og hér hefur komið fram þá þykir öllum virkilega vænt um nafnið sitt. Hefði ég verið spurð þegar ég var skírð hvort ég vildi bera þetta nafn þá hefði ég kannski valið eitthvað annað en með tímanum er þetta náttúrlega mitt einkenni og mitt nafn. Ég hugsa að ég hefði ekki gefið annað eftirnafn en föður míns því að annað hefði verið einkennilegt og ég er ekki til í að skipta því út þó að ég gæti t.d. í dag kannski hugsað mér að bera nafn móður minnar líka, ég hef ekki farið út í þá breytingu.
Mér finnst þetta skipta máli og þar sem ég kem nú frá Vestfjörðum þá ríkir þar sérstök nafnahefð og ekki þarf að leita lengi að sérstökum nöfnum á Vestfjörðum. Ég man að þegar ég átti barn árið 1992 var mannanafnanefnd eins árs. Hún var sett á stofn 1991. Í kringum mig voru konur að eiga börn og þetta var heljarinnar mál því að vestfirsku nöfnin fóru svo illa í þessa nefnd. Hálfdán var t.d. ekki með séríslenska beygingu. Það mátti ekki skíra Patrek, það varð að vera Patrekur. Ég man eftir því að presturinn kom til mín fyrir skírnina og spurði hvað barnið ætti að heita. Ég sagði honum það og hann andvarpaði: Gott, ég er búinn að standa í svo miklu veseni núna síðustu mánuði. Þetta voru bara íslensk vestfirsk nöfn sem þeim hugnaðist ekki, sem höfðu verið á Vestfjörðum um aldir. Í skemmtilegri bók, Grunnvíkingabók, um fólk og búskap í Grunnavíkurhreppi, er nafnalisti þar sem finna má nöfn neins og Líkafrón og ein kona hét Freðsvunta. Svuntan fraus á ljósmóðurinni þegar hún fæddist. Afkomendur hennar hafa svo sem ekki borið það nafn. Evlalía; ég get endalaust talið upp nöfn sem ekki myndu hljóta náð fyrir augum mannanafnanefndar í dag, en svo sér maður einstaka nöfn sem eru bara mjög furðuleg. Amma mín taldi víst að það hefði verið til kona fyrir vestan sem hét 25. Júlíana fimm sinnum Trína, af því að hún var fædd á þeim degi, alltaf kölluð Trína.
Við eigum svo sterka hefð í þessum nafnagjöfum að ég held að okkur sé treystandi til að bera hana áfram til næstu kynslóðar. Mér finnst alla vega ungt fólk í kringum mig ríghalda í að skíra eftir og bera íslensk nöfn. Og ég hef ekki enn hitt neinn sem lætur barnið sitt bera eitthvert nafn sem barnið stendur ekki undir. Ég er því alveg viss um það að markmiðið með þessu frumvarpi er að tryggja rétt einstaklinga til að bera það nafn eða þau nöfn sem þeir kjósa og tryggja að lög um mannanöfn takmarki ekki persónufrelsi fólks eða frelsi fólks til að skilgreina sig.
Síðan er fólk síðustu misseri eða ár farið að skilgreina sig með ýmsum hætti og fólk hefur komið til mín sem hefur annaðhvort farið í gegnum ýmsar breytingar eða hefur viljað skilgreina sig á annan veg. Þá eru það þessi lög sem koma í veg fyrir að það geti fengið fullnægjandi mannréttindi. Það er eitthvað sem við eigum ekki að skrifa undir. Ég er kannski ekki sú fyrsta þegar kemur að breytingum á hefðum, ég stend ekki fyrir þeim. Ég vil halda í íslenskar hefðir og held að við getum gert það og tryggt það með því að veita þetta frelsi enn frekar. Síðan erum við, með því að breyta þessu, að taka undir þá fjölmenningu sem hér er. Það er t.d. ekkert svo langt síðan að þegar einhver fékk íslenskan ríkisborgararétt þá þurfti hann að bera íslenskt nafn. Allt í einu hét kona frá Taílandi Rósa eða Sigríður, og hún gat ekki einu sinni borið það fram. Hvað erum við að gera þarna? Ég hefði ekki viljað flytja til Taílands og heita — mér dettur bara ekkert í hug — eitthvað. En ég hefði viljað halda í mitt fallega nafn sem foreldrar mínir kusu. Það er t.d. svolítið sérstök hefð hér á landi að flest börn bera tvö nöfn í dag. Svo er ekki alls staðar annars staðar og því erum við alltaf að taka upp og viðhalda ákveðnum hefðum. Við verðum bara að ætla að það verði til frambúðar, eða alla vega vona ég það, og þetta frumvarp mun ekki koma í veg fyrir það.