mannanöfn.
Virðulegur forseti. Þegar ég hef fylgst með umræðunni um mannanafnalög undanfarin ár, í fjölmiðlum og annars staðar, minnir það mig stundum á það sem sálgreinirinn Carl Jung sagði, og fleiri hafa sagt, að það sé miklu auðveldara að dæma en skilja. Þetta með öll mannréttindabrotin sem maður hefur heyrt í íslenskri umræðu, ég er ekki að segja að það sé fjallað um það í þessu en það er nánast ýjað að því. Réttur til nafns nýtur verndar 1. mgr. 71. gr. stjórnarskrárinnar og svo er vitnað í dómaframkvæmd mannréttindasáttmála Evrópu og að þau falli undir rétt til einkalífs í 8. gr. mannréttindasáttmálans. Ég veit ekki um neinn hæstaréttardóm á Íslandi þar sem kveðið er á um það að núgildandi mannanafnalög brjóti í bága við stjórnarskrána. Ekkert. Það er ekki þannig. Það er ekkert sem bendir til að íslensk mannanafnalög, núgildandi lög, brjóti í bága við rétt til einkalífs eða brjóti núverandi stjórnarskrá og allt tal um það er bara ekki rétt. Þá hvet ég alla til þess, alla sem telja brotið á sér með núverandi mannanafnalögum, að leita réttar síns fyrir dómstólum. Ég efast ekki um að þau gætu fengið gjafsókn til þess, tel alla vega miklar líkur á því.
Að halda því fram að íslensk nafnahefð og íslenskt málkerfi sé varið með neikvæðum formerkjum í núgildandi lögum, ég tel að það sé ekki rétt. Það er verið að verja það að stjórnsýslumálið á Íslandi er íslenska og þá af því að íslensk stjórnsýsla fjallar mikið um nöfn, það þarf að fjalla um borgara þessa samfélags, er mikilvægt að nöfnin falli að íslensku málkerfi, geti tekið eignarfallsendingu og aðrar endingar sem snúa að íslensku málkerfi og málfræði. Svo einfalt er það. Það geta allir kallað sig hverju sem er, það er ekkert mál. Þetta snýst um skráningu í þjóðskrá og það er skylda að gefa öllum nöfn. Hvað ef foreldri færi í mál og neitaði að gefa barni sínu nafn og færi með það fyrir dómstóla? Er það brot á mannréttindum að gefa barni nafn, ef við förum út í það?
Annað í þessu sem ég tel líka vert að koma inn á er að það hefur komið hérna fram áðan — mér fannst eins og ég væri kominn fyrir árið 1996. Með lagabreytingu árið 1996 var lögunum breytt á þá leið að erlendir ríkisborgarar sem fá íslenskt ríkisfang fái að halda nafni sínu. Fram að þeim tíma var þeim gert að taka upp íslenskt nafn. Allir sem flytja hingað til landsins, hvað sem þeir heita, hvort sem það er japanskt nafn eða eitthvert arabískt nafn eða annað, halda sínum nöfnum. Það er enginn að þvinga fólk sem kemur til landsins og fær íslenskan ríkisborgararétt til þess að taka upp íslensk nöfn. Það er bara ekki verið að gera það. Það er enginn að þvinga einn eða neinn í þessu. Þetta er bara að sjá til þess að við séum með nöfn sem samræmast þessum hefðum hérna og íslensku málkerfi. Svo einfalt er það. Ég get bara tekið núgildandi lög, það er talað um í 5. gr. að eiginnafn skuli „geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.“ Ef það eru nöfn frá Vestfjörðum, Patrik eða eitthvað slíkt, þau hafa unnið sér hefð í íslensku máli og þá eru þau bara skráð. Það er ekkert vandamál í kringum það.
Það má finna mannréttindabrot alls staðar í heiminum. Jón Ásgeir Jóhannesson, kaupmaður eða viðskiptamaður, sagði einu sinni — ég man svo vel eftir þessu, ég skrifaði lokaritgerð mína um þróun mannréttindasáttmála Evrópu á Íslandi og áhrif á íslenskt réttarkerfi og ég safnaði svona klippum um mannréttindabrot. Eitt mannréttindabrotið var það að Jón Ásgeir Jóhannesson lýsti því yfir að það væri mannréttindabrot að fá ekki að selja M&M-kúlur í Bónus. Þetta var frétt í DV. Það var alltaf frétt, það var allt orðið mannréttindabrot. Við erum komin með mannréttindaskrifstofu hjá Reykjavíkurborg, það kemur mannréttindastofnun og mér finnst nánast misnotkun á þessu hugtaki, mannréttindi. Það er grafalvarlegt mál ef einhver verður fyrir mannréttindabroti. Ég heyri það hér í bæ að ef einhver ætlar að byggja hjólaskýli kemur mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar og tekur það út í skipulagi hvort byggja megi þetta hjólaskýli eða ekki. Eru það mannréttindi eða ekki? Nei, mannréttindi eru skráð í mannréttindakafla stjórnarskrárinnar og þar eru þau varin. Þannig er það.
Ég get ekki séð að núgildandi lög, það er a.m.k. ekki kominn dómur um að núgildandi mannanafnalög séu að brjóta á mannréttindum fólks, þau eru ekki íþyngjandi að mínu viti og þetta er ákveðinn rammi sem er settur þarna svo hægt sé að skrá nöfn fyrir íslenskt samfélag og gerð er krafa um að þau falli að íslenskri tungu. Svo einfalt er það og það er nefnd sem ákveður hvaða nöfn eru samþykkt og hver ekki og það eru mörg undarleg nöfn sem þau hafa samþykkt og svo hafa þau hafnað öðrum og það er bara eins og gengur. Ef einhver hefur brotið af sér þar, í þessari blessuðu nefnd, þá er hægt að kæra það áfram, hvort einhver megi heita því nafni sem þeir hafa sagt nei við, þá er bara hægt að fara með það áfram. Mér finnst verið að gera svolítið úr þessu. Við verðum að taka það alvarlega þegar við erum að tala um mannréttindabrot og saka einhvern um mannréttindabrot. Að þusa um það fram og til baka í íslensku samfélagi að hitt og þetta sé mannréttindabrot, M&M-kúlur, hitt og þetta, það er bara farið allt of léttúðlega með það að mínu mati. Við eigum að bera mikla virðingu fyrir mannréttindum og þeim reglum sem verja mannréttindi, ekki að útvatna það hugtak.
Ég tel sjálfsagt að endurskoða lögin um mannanöfn, alveg sjálfsagt mál, ef þar eru einhverjir meinbugir sem passa ekki að tíðaranda í dag, eitthvað svoleiðis. En ég tel ekki ástæðu til þess að vera að koma með algerlega nýjan lagabálk. Það er ágætisreifun hér í frumvarpinu sem fjallar um mannanafnalög frá 1914, fyrstu lög 1925 og svo 1996 og svo áfram og núgildandi lög eru frá 1996 og heildarendurskoðun — ja, ég hef ekki verið sannfærður um það. Við eigum að vera stolt af okkar nafnahefð. Ég hef búið erlendis, eins og í Skandinavíu. Norðmenn dauðöfunda okkur af því að við tölum íslensku. Þeir misstu tungumálið sitt, þeir misstu þetta nafnakerfi. Mér skilst að síðustu einstaklingarnir þar sem hétu -dóttir og -son hafi verið fram yfir 1900 þar. Svíar hafa tekið þetta upp m.a. og fólk heitir núna -datter og svoleiðis. Ég held að það hafi verið að sið Íslendinga, það þykir orðið fínt þar að nota þetta, maður tekur eftir þessu og þetta er bara hið besta mál. Ég veit ekki, á þetta bara að vera algerlega frjálst, bara allir að fá að — eins og Prince tók upp táknið. Er það er ekki bara besta mál? Enginn veit hvað hann hét, hann tók upp tákn. Kannski gæti ég bara kallað mig X. Hvert eigum við að fara í þessu? Eigum við ekki að gefa börnum nöfn sem þau hafa ekki ama af og eru ekki lögð í einelti út af og tengjast íslensku samfélagi? Ef þetta væri algjörlega frjálst þá gæti maður farið að kalla sig eftir einhverju tákni eða hvað sem það er.